Select Page

Nú hefur verið formlega opnað fyrir umsóknir í tækni- og fastanefndir FSÍ.

Tækninefndir FSÍ; áhaldafimleikar karla, áhaldafimleika kvenna og hópfimleikar

Starfstímabil nefndanna er hinn sami og stjórnar eða 2023-2025.

Formaður tækninefndar er í forsvari fyrir nefndina og hefur ásamt öðrum fulltrúum í nefndinni eftirlit með framkvæmd mótaðrar stefnu á verksviði nefndarinnar. Leitast er við að formaður hverrar nefndar sé alþjóðlegur dómari sé þess kostur.

Umsóknum skal skilað í gegnum eftirfarandi formi, eigi seinna en á miðnætti miðvikudaginn 14.júní 2023.

Tilnefningar í tækni- og fastanefndir

Óskað er eftir tilnefningum í eftirfarandi nefndir:

  • a.m.k þriggja manna tækninefnd karla í áhaldafimleikum,
  • a.m.k þriggja manna tækninefnd kvenna í áhaldafimleikum,
  • a.m.k þriggja manna tækninefnd í hópfimleikum,
  • a.m.k þriggja manna nefnd um fimleika fyrir alla,
  • a.m.k þriggja manna fræðslunefnd,
  • a.m.k þriggja manna nefnda um fjáröflunar- og markaðsmál.