Select Page

 Öruggt umhverfi 

– Inngangur

Fimleikasamband Íslands leggur gríðarlega áherslu á að allir iðkendur fimleika á Íslandi geti stundað íþróttina sína í öruggu umhverfi. Hér að neðan má finna upplýsingar um fræðslu og hvert er hægt að leita ef að grunur er um að öryggi iðkenda sé ógnað. 

Öruggt umhverfi íþróttastarfs

Aga- og siðanefnd FSÍ, hefur leiðbeinandi- og ráðgefandi hlutverk í málum sem snerta aga- og siðareglur sambandsins. Nefndin er ráðgefandi um það til hvaða aðgerða ráðlagt sé að grípa til ef fram kemur kvörtun, rökstuddur grunur eða ábending um einelti, ofbeldi eða kynferðislega- eða kynbundna áreitni í tengslum við starfsemi á vegum eða ábyrgð FSÍ.

Hægt er að hafa samband við Aga- og siðanefnd FSÍ á tilkynning@fimleikasamband.is

Siðareglur og hegðunarviðmið má finna hér undir Reglugerðir FSÍ. 

Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs

Allir eiga rétt á því að geta stundað sitt íþrótta- og/eða æskulýðsstarf í öruggu umhverfi. Einnig eiga allir iðkendur; börn, unglingar og fullorðnir óháð kynferði eða stöðu að öðru leyti að geta leitað sér aðstoðar eða leitað réttar síns vegna atvika og misgerða sem eiga sér stað án þess að þurfa að óttast afleiðingar.

Samskiptaráðgjafi er óháður aðili sem styður við, leiðbeinir og aðstoðar þá sem hafa upplifað einhverskonar ofbeldi eða einelti í slíku starfi. Sigurbjörg Sigurpálsdóttir er Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs.

Þeir sem telja sig hafa orðið fyrir ofbeldi eða einelti í sínu íþrótta- og æskulýðsstarfi eða eru ekki vissir og vilja fá ráðgjöf varðandi slík mál, geta haft samband við Sigurbjörgu með því að senda póst á samskiptaradgjafi@samskiptaradgjafi.is eða hringt í síma 839-9100.

Engin greiðsla er tekin fyrir þjónustu samskiptaráðgjafa.

Æskulýðsvettvangur

Æskulýðsvettvangurinn er samstarfsvettvangur Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Ungmennafélags Íslands. Æskulýðsvettvangurinn vinnur að sameiginlegum hagsmunamálum barna og ungmenna í íþrótta- og æskulýðsstarfi og stuðlar að heilbrigðum, uppbyggjandi, vönduðum og öruggum aðstæðum í slíku starfi.

Boðið er upp á ýmis námskeið og fræðslu sem starfsfólk íþróttafélaga ætti að kynna sér vel.

Heimasíða Æskulýðsvettvangsins

Barnavernd – Netnámskeið Æskulýðsvettvangsins

Markmiðið með námskeiðinu er að auka þekkingu starfsfólks og sjálfboðaliða í íþrótta- og æskulýðsfélögum um land allt á einelti, ofbeldi og áreitni sem börn og ungmenni geta orðið fyrir og afleiðingunum af því.

Það er mikilvægt fyrir alla þá sem starfa með börnum og ungmennum að vera meðvituð um skyldur sínar og ábyrgð.

Netnámskeið Æskulýðsvettvangsins í barnavernd er öllum opið og ókeypis.