Select Page

Blandað lið í hópfimleikum

Your Title Goes Here

Day(s)

:

Hour(s)

:

Minute(s)

:

Second(s)

Úrvalshópar og A-landslið fyrir Evrópumót 2024

Ferlið fram að EM 2024

Fimleikasambandið stefnir á að senda tvö A-landslið til keppni, blandað lið og kvennalið. Mótið verður haldið í Azerbaijan í október 2024. 

Landsliðsþjálfarar velja úrvalshóp sem tilkynntur er á heimasíðu sambandsins og sendur á félögin. Úrvalshópur er breytilegur yfir árið og því eiga allir möguleika á að komast í hóp. 

Yfirmaður verkefnisins er framkvæmdastjóri FSÍ, Sólveig Jónsdóttir en daglegur rekstur og umsjón þess er á höndum afreksstjórans, Írisar Mistar Magnúsdóttur með faglegri aðstoð frá Eddu Dögg Ingibersdóttur. Yfirþjálfarar verkefnisins, með faglega stjórn og uppbyggingu, eru þau Björn Björnsson og Hrefna Þorbjörg Hákonardóttir.

Úrvalshópar kvenna og karla 2024

Markmið

Lágmarkskröfur og lokamarkmið: 

Hér má sjá lágmarkskröfur fyrir þátttöku í úrvalshópa atburðum og lokamarkmið fyrir EM 2024.

    Mómentamarkmið:

    Hér má finna myndbönd af mómentamarkmiðum og tillögum að undirbúningsæfingum:

    Konur
    Karlar

    Landsliðsþjálfarar

    Adam Bæhrenz Björgvinsson
    Stökkáhöld

    Una Brá Jónsdóttir
    Stökkáhöld

    Yrsa Ívarsdóttir
    Gólfæfingar

    Þórey Ásgeirsdóttir
    Gólfæfingar

    Yfirþjálfarar

    Yfirþjálfarar verkefnisins eru þau Björn Björnsson og Hrefna Þorbjörg Hákonardóttir, en þau eru meðal reyndustu þjálfara Íslands með feril sem skartar tveimur Evrópumeistaratitlum.

    Björn Björnsson

    Yfirþjálfari
    Stökkáhöld

    Hrefna Þorbjörg Hákonardóttir

    Yfirþjálfari
    Gólfæfingar

    Fyrirkomulag blandaðra liða á Evrópumótum

    Lokahópur samanstendur af tíu keppendum og tveimur varamönnum. Keppt er í undanúrslitum þar sem liðin freista þess að komast á lokamót. Einungis sex lið ná því og keppa um Evrópumeistaratitilinn

    Úrslit Íslands á Evrópumótum í blönduðum flokki og karlaflokki

    Fyrsta Evrópumótið fór fram árið 1996. Mótið var félagsliðamót til ársins 2010 og mátti hvert land þá senda tvö lið til keppni.

    Blandað lið

    2012 – Århus, Danmörk – 4. sæti

    2014 – Reykjavík, Ísland – 3. sæti

    2016 – Maribor, Slóvenía – 3. sæti

    2018 – Odivelas, Portúgal – 3. sæti

     

    Karlalið

    2010 – Malmö, Svíþjóð – 4. sæti

    2021 – Portugal – 3. sæti

    2022 – Luxemborg – 4. sæti

     

     

     

    Áfram Ísland
    #fyririsland
    #fimleikarfyriralla
    #islenskirfimleikar

    Um næsta Evrópumót

    Staðsetning

    Baku, Azerbaijan

    Dagsetning

    16.-19. október 2024

    Aldur

    Unglingaflokkur 14-17 ára (fædd 2010-2007)
    Fullorðinsflokkur 16 ára og eldri

    Frekari upplýsingar

    Koma síðar