Select Page

Landslið drengjaliðs í hópfimleikum

Your Title Goes Here

Day(s)

:

Hour(s)

:

Minute(s)

:

Second(s)

Landslið fyrir Evrópumót 2026

Ferlið fram að EM 2026

Í úrvalshópum eru iðkendur fæddir 2009-2012. Þar eru iðkendur sem uppfylla ákveðnar lágmarkskröfur sem landsliðsþjálfarar gefa út. Kröfur eru sendar á félögin og eru aðgengilegar á heimasíðu Fimleikasambandsins. Félagsþjálfarar tilnefna þá iðkendur sem uppfylla lágmarkskröfur og landsliðsþjálfarar fara yfir tilnefningarnar og horfa á mót vetrarins. . Úrvalshópur er breytilegur yfir árið og því eiga allir möguleika á að komast í hóp. 

Fimleikasambandið stefnir að því að senda þrjú lið í U-18 á Evrópumótið 2026 (EM), stúlknalið, drengjalið og blandað lið.  Mótið verður haldið í Espoo, Finnlandi, október 2026. 

Yfirmaður verkefnisins er framkvæmdastjóri FSÍ, Eva Hrund Gunnarsdóttir en daglegur rekstur og umsjón þess er á höndum afreksstjórans með faglegri aðstoð frá Eddu Dögg Ingibersdóttur. 

Landsliðshópur – Drengjalið – 2026

Dagskrá

Hér má sjá  lágmörk inn í úrvalshóp unglinga fyrir EM 2026: Lágmörk

Athugið að félag/félagsþjálfarar skrá iðkendur (sem uppfylla lágmörk) í úrvalshóp í gegnum þjónustugátt FSÍ.

Skráningu lokar 4.mars

 

 

Markmið

Hér má sjá markið sem að landsliðsþjálfara hafa sett upp fyrir EM 2026: Markmið fyrir 2026

    Mómentamarkmið fyrir EM 2026 og undirbúningsæfingar má finna hér

    Hér má sjá  lágmörk inn í úrvalshóp unglinga fyrir EM 2026: Lágmörk

    Athugið að félag/félagsþjálfarar skrá iðkendur (sem uppfylla lágmörk) í úrvalshóp í gegnum þjónustugátt FSÍ. Skráningu lokar 4.mars

    Landsliðsþjálfarar drengjalið

    Heiðrún Ósk Sævarsdóttir
    Gólfæfingar

    Tomas Bekkavik
    Stökkáhöld

    Halldór Hafliðason
    Stökkáhöld

    Fyrirkomulag drengjaliða á Evrópumótum

    Lokahópur samanstendur af tíu keppendum og tveimur varamönnum.  Keppt er í undanúrslitum þar sem liðin freista þess að komast á lokamót. Einungis sex lið ná því og keppa um Evrópumeistaratitilinn.

    Úrslit Íslands á Evrópumótum í drengjaliði

    Fyrsta Evrópumótið fór fram árið 1996. Keppni í unglingaflokki hófst fyrst á Evrópumótum árið 2010.

    2014 – Reykjavík, Ísland – 5. sæti

    2022 – Lúxemborg – 5. sæti

    2024 – Baku – 4. sæti

    Áfram Ísland
    #fyririsland
    #fimleikarfyriralla
    #islenskirfimleikar

    Um næsta Evrópumót

    Staðsetning

    Espoo, Finland

    Dagsetning

    14.-17. október 2026

    Aldur

    Unglingaflokkur 14-17 ára
    Fullorðinsflokkur 16 ára og eldri