Select Page

Dómaraflokkar karla

Uppbygging menntunar dómara í áhaldafimleikum karla

E Aðstoðardómari

15 ára eða eldri

Kröfur

  • Sitja dómaranámskeið
  • Þeir sem ekki standast E-dómarapróf eða eru yngri en 16 ára, fá E-aðstoðardómarapróf

Réttindi

  • FSÍ mót í Fimleiksastiganum án þess að þeirra E-einkunn telji með í lokaeinkunn
  • Millifélaga- og innanfélagsmót í 3., 4., 5. og 6. þrepi Fimleikastigans

E 3 dómari

16 ára eða eldri

Kröfur

  • Sitja dómaranámskeið
  • Lágmarksárangur á prófi, verklegt (60%) og bóklegt (50%)

Réttindi

  • FSÍ mót í Fimleikastiganum sem E dómari í 3., 4. og 5. þrepi

E 2 dómari

16 ára eða eldri

Kröfur

  • Sitja dómaranámskeið
  • Lágmarksárangur á prófi, verklegt (65%) og bóklegt (65%)
  • Kynna sér Fimleikastigann

Réttindi

  • FSÍ mót í Fimleikastiganum sem E dómari og D dómari í 3., 4., og 5. þrepi

E 1 dómari

18 ára eða eldri

Kröfur

  • Sitja dómaranámskeið
  • Lágmarksárangur á prófi (65%)
  • Dæmt minnst 2 mót á ári sem E2/E3 
  • Verið með dómararéttindi áður

Réttindi

  • FSÍ mót í frjálsum æfingum sem E dómari
  • FSÍ mót í Fimleikastiganum sem E dómari og D dómari í 3., 4., og 5. þrepi.

D 2 dómari

18 ára eða eldri

Kröfur

  • Sitja dómaranámskeið
  • Lágmarksárangur á próf (65%)
  • Dæmt minnst 2 mót á ári 
  • Verið E1 dómari amk. 1 ár

Réttindi

  • FSÍ mót í frjálsum æfingum sem E dómari eða D2 dómari
  • FSÍ mót í Fimleikastiganum sem E eða D dómari og yfirdómari

D 1 dómari

20 ára eða eldri

Kröfur

  • Sitja dómaranámskeið
  • Lágmarksárangur á próf (65%)
  • Dæmt minnst 4 mót á ári 
  • Verið E1 dómari í amk. 2 ár

    Réttindi

    • FSÍ mót sem E eða D dómari og yfirdómari

    Alþjóðlegur dómari

    21 árs eða eldri

    Kröfur

    • Sitja alþjóðlegt dómaranámskeið viðurkennt af FIG og ná prófi samkvæmt útgefnum kröfum FIG í bóklegum og verklegum hluta
    • Verið virkur D1 dómari í minnst 1 ár
    • Dæmt minnst 2 mót á ári sem D dómari

    Réttindi

    • FSÍ mót í frjálsum æfingum sem E dómari eða D dómari og yfirdómari
    • Alþjóðlegt mót