Select Page

Stjórn Fimleikasambandsins hefur valið fimleikafólk ársins 2021.

Fimleikakona ársins er Kolbrún Þöll Þorradóttir

Kolbrún Þöll var máttarstólpi í kvennalandsliði Íslands á Evrópumóti í hópfimleikum nú í desember þegar liðið tryggði sér Evrópumeistaratitilinn. Kolbrún keppti í öllum umferðum í undanúrslitum og í úrslitunum og skilaði öllum sínum stökkum og gólfæfingum með glæsibrag. Stökkin hennar voru á meðal þeirra erfiðustu sem framkvæmd voru á mótinu og ber þar helst að nefna tvöfalt heljarstökk með beinum líkama og þremur og hálfri skrúfu, sem hún framkvæmdi á trampólíni bæði í undanúrslitum og úrslitum við mikinn fögnuð fimleikaheimsins. Kolbrún Þöll er fyrsta konan til þess að keppa með það stökk á Alþjóðlegu móti, hún keppti einnig með þetta stökk 2016, en á þeim 5 árum hefur engin önnur kona keppt með stökkið, sem er til marks um hversu erfitt það er. Kolbrún Þöll var ein af sex fimleikakonum á EM sem var valin í úrvalslið Evrópumótsins „All stars“ liðið, en hún hefur verið valin í það lið á síðustu 4 Evrópumótum, 2014, 2016, 2018 og núna 2021. Kolbrún var að keppa á sínu 5. Evrópumóti en hún var í sigurliði Íslands árið 2012, þegar stúlknaliðið varð Evrópumeistari og er þetta því hennar annar Evrópumeistaratitill. Kolbrún er fimleikakona á heimsmælikvarða sem eftir er tekið á öllum mótum, hvort sem er á Íslandi eða erlendis, vegna stórkostlegra hæfileika og góðrar framkvæmdar í stökkum, sem og í gólfæfingum. Kolbrún varð á árinu Íslands – og Bikarmeistari með félagsliði sínu, Stjörnunni, og spilar þar ekki síður stórt hlutverk en í landsliðinu.
Til hamingju Kolbrún Þöll.

Fimleikakarl ársins er Helgi Laxdal Aðalgeirsson

Helgi var í karlalandsliði Íslands á nýafstöðnu Evrópumóti í hópfimleikum þegar liðið tryggði sér 2. sæti en það er í fyrsta sinn sem karlaliðið kemst á pall. Hann keppti fyrstur í heiminum með framseríuna skrúfa-kraftstökk-tvöfalt strekkt heljarstökk með tveimur hálfri skrúfu á dýnu og braut þar blað í fimleikasögunni. Hann var valinn í úrvalslið mótsins, einn af sex fimleikamönnum á öllu mótinu sem fengu þann heiður, en Helgi var valinn fyrir stökkin sem hann framkvæmdi á dýnu. Helgi keppti einnig með yfirslag með tvöföldu heljarstökki og hálfri skrúfu og þrefalt heljarstökk með tveimur og hálfri skrúfu á trampólíni og er þar á pari við allra bestu fimleikamenn heims í erfiðleika. Helgi keppti ásamt liðinu sínu á Bikar og Íslandsmóti í vor og hampaði þar Íslands og Bikarmeistaratitlum. Hann hefur löngum vakið athygli fyrir mikla útgeislun á dansgólfinu þar sem hann nýtur sín vel og skilar dansinum virkilega vel frá sér, Helgi er einnig framúrskarandi góður stökkvari og keppir iðullega í öllum umferðum þegar að liðið hans keppir.

Til hamingju Helgi.

Lið ársins er Kvennalandsliðið í hópfimleikum

Liðið keppti á Evrópumóti í Portúgal í desember 2021. Eftir undanúrslitadaginn var liðið í 2. sæti, 0,950 stigum á eftir Svíþjóð. Á úrslitadaginn sýndu þær úr hverju þær væru gerðar og gerðu sér lítið fyrir og urðu Evrópumeistarar, með jafnmörg stig og Svíþjóð en sigur á fleiri áhöldum. Íslenska liðið sigraði á gólfi og á trampólíni enda með hnökralaust trampólín og stórkostlegan dans þar sem þær fengu nánast öll dansmómentin sín gild. Það geislaði af þeim á dansgólfinu og það sást að þær voru öruggar og tilbúnar í öllum stökkum. Liðið samanstendur af virkilega frambærilegum fimleikakonum sem hafa lagt mikið í sölurnar síðustu ár og unnið mjög hart að því að ná þessum titli, sem þær áttu svo sannarlega skilið. Lið ársins er án nokkurs vafa íslenska kvennalandsliðið í hópfimleikum.

Fimleikakona ársins, 2. sæti – Ásta Kristinsdóttir
Ásta var að keppa á sínum 3. Evrópumóti fyrir Íslands hönd nú í desember. Hún hefur verið í stöðugum framförum síðastliðin ár og er farin að vekja eftirtekt fyrir að geta framkvæmt erfið stökk með góðri framkvæmd og fyrir mikla útgeislun á dansgólfi. Ásta var á Evrópumótinu ein af 6 konum sem voru valdar í úrvalsliðið fyrir æfingarnar sem hún framkvæmdi með Kvennaliði Íslands á gólfi. Hún er mikil fyrirmynd í salnum, vinnur hörðum höndum að því að verða sífellt betri og er jákvæð svo eftir er tekið. Ásta varð á árinu Íslands – og Bikarmeistari með félagsliði sínu og var þar máttarstólpi í liðinu, sem og á Evrópumótinu. Hún stökk þar í öllum umferðum bæði í úrslitum og í undanúrslitum og stóð sig framúrskarandi vel.

Fimleikakarl ársins, 2. sæti – Valgarð Reinhardsson
Valgarð varð Íslandsmeistari í fimmta skipti árið 2021 og hefur fyrir löngu skipað sér í röð bestu fimleikamanna Íslands. Árið hefur verið viðburðaríkt hjá Valgarð, hann keppti meðal annars á Evrópumóti í vor þar sem hann slasaðist á fyrsta áhaldi. Valgarð var fljótur að vinna sig upp úr þeim meiðslum og keppti á Heimsmeistaramóti í Japan í október og náði þar 36. sæti. Í nóvember lá leiðin til Wales á Norður Evrópmót þar sem Valgarð stóð sig vel og náði 9. sæti í fjölþraut og komst einnig í úrslit á tvíslá þar sem hann endaði fjórði. Auk þess að vera Íslandsmeistari varð Valgarð Bikarmeistari með liði sínu Gerplu. Valgarð er okkar fremsti fjölþrautarkeppandi sem stefnir hátt á aðþjóðavettvangi.

Fimleikakona ársins, 3. sæti – Margrét Lea Kristinsdóttir
Á árinu 2021 náði Margrét Lea besta árangri kvenna þegar hún vann til silfur verðlauna á Norður Evróupmóti, sem fram fór í Wales nú í nóvember. Silfurverðlaunin hlaut hún fyrir æfingar sínar á gólfi þar sem hún fékk 12.550 stig. Margrét Lea var einnig með bestan árangur kvenna í fjölþraut á sama móti með 46.550 stig. Margrét Lea keppti fyrir hönd Íslands bæði á Evrópumóti og Heimsmeistaramóti á árinu og stóð sig frábærlega. Á Bikarmóti FSÍ var Margrét Lea lykilmanneskja í liði Bjarkanna sem fór með sigur af hólmi. Á Íslandsmóti hafnaði Margrét Lea í 3. sæti. Hún er afrekskona í fremstu röð, metnaðarfull, þolinmóð og gefst ekki upp þó á móti blási. Hún hefur ávallt æft af miklu kappi og setur markmiðið hátt. Hún er öðrum fimleikastúlkum til fyrirmyndar innan sem utan vallar.

Fimleikakarl ársins, 3. sæti – Einar Ingi Eyþórsson
Einar Ingi er fimleikamaður í fremstu röð. Hann hefur lengi verið með bestu fimleikamönnum Íslands og sýndi snemma mikla færni í flóknum stökkum. Einar Ingi varð á árinu bæði Bikar – og Íslandsmeistari í hópfimleikum með sínu félagsliði. Hann stökk þar í öllum umferðum og sýndi hvers hann er megnugur og óhræddur við að takast á við erfið stökk. Einar Ingi keppti með karlalandsliði Íslands á Evrópumótinu í Portúgal í desember og var þar máttarstólpi í liðinu, hvort sem var á dansgólfinu eða á stökkáhöldunum. Einar Ingi er frábær dansari sem er tekið eftir, með mikla útgeislun og vel útfærðar dansæfingar. Hann stekkur einnig erfiðustu stökk sem landsliðið keppir með, til dæmis tvöfalt afturábak heljarstökk með strekktum líkama og þrefaldri skrúfu á dýnu og er hann eini karlinn í landsliðinu sem framkvæmir það stökk. Einar Ingi lenti ásamt karlalandsliðinu í 2. sæti á Evrópumeistaramótinu sem er frábær árangur og átti hann stóran þátt í að koma liðinu þangað.

Einnig voru nefndir:

  • Viktor Elí Sturluson
  • Júlían Máni Katrínarson
  • Jónas Ingi Þórisson
  • Dagur Kári Ólafsson
  • Andrea Sif Pétursdóttir
  • Nanna Guðmundsdóttir
  • Guðrún Edda Min Harðardóttir