Norðurlandamót unglinga í áhaldafimleikum hefst í dag með keppni í drengjaflokki.
15 íslenskir keppendur sem skipa þrjú landslið, unglingalandslið í karla- og kvennaflokki og drengjalið (youth), eru mætt til Helskini, Finnlands, þar sem að norðurlandamót unglinga fer fram. Þjálfarar landsliðanna eru þau Alek Ramezanpour (youth), Gabriella Belányiné (unglinga) Hróbjartur Pálmar Hilmarsson (youth og unglinga), Ólafur Garðar Gunnarsson (youth og unglinga) og Þorgeir Ívarsson (unglinga). Hér má sjá nöfn íslensku keppandanna.
Unglingalandsliðin eru á æfingu í keppnishöllinni þegar þessi frétt er skrifuð og þegar þeirri æfingu líkur þá mæta drengirnir í upphitun. Drengjalið íslands keppir í dag klukkan 11:00 á íslenskum tíma. Keppni unglinga hefst á morgun og keppt er til úrslita á einstökum áhöldum á sunnudag.
Íslensku keppendurnir eru búnir að koma sér vel fyrir hér í Finnlandi og það má segja að það sé mikil spenna í hópnum.
Dagskrá
Föstudagurinn 18. maí
- Liða- og fjölþrautarkeppni drengja hefst klukkan 11:00
Laugardagurinn 19. maí
- Liða- og fjölþrautarkeppni unglinga WAG hefst klukkan 07:10
- Liða- og fjölþrautarkeppni unglinga MAG hefst klukkan 12:30
Sunnudagurinn 20. maí
- Úrslit á einstökum áhöldum í öllum flokkum hefst klukkan 08:00
Úrslitaþjónusta og myndir
Hér er hægt að fylgjast með úrslitum.
Hér koma myndir frá mótinu.
Áfram Ísland!