Select Page

Ráðið hefur verið í allar landsliðsþjálfarastöður fyrir Evrópumótið í hópfimleikum, sem fram fer í Azerbaijan í BAKU dagana 16.-19. október 2024. 

Yfirmaður verkefnisins er framkvæmdastjóri FSÍ, Sólveig Jónsdóttir en daglegur rekstur og umsjón þess er á höndum afreksstjórans, Írisar Mistar Magnúsdóttur með faglegri aðstoð frá Eddu Dögg Ingibersdóttur. Yfirþjálfarar verkefnisins, með faglega stjórn og uppbyggingu, eru þau Björn Björnsson og Hrefna Þorbjörg Hákonardóttir.

Fimleikasambandið stefnir á að senda tvö A-landslið á mótið, kvennalið og blandað lið og tvö lið í flokki U-18, stúlknalið og blandað lið unglinga. Skoðað verður á næstu önn hvort drengjalið verði einnig sent á mótið. Þjálfara hvers liðs í stafrófsröð má sjá hér fyrir neðan.

Landsliðsþjálfarar 2024

Kvennalið: 

Björk Guðmundsdóttir, gólfæfingar

Kristinn Þór Guðlaugsson, stökkáhöld

Magnús Óli Sigurðsson, stökkáhöld

Rakel Másdóttir, gólfæfingar

Blandað lið fullorðinna: 

Adam Bæhrenz Björgvinsson, stökkáhöld

Una Brá Jónsdóttir, stökkáhöld

Yrsa Ívarsdóttir, gólfæfingar

Þórey Ásgeirsdóttir, gólfæfingar

​​Stúlknalið: 

Eyrún Inga Sigurðardóttir, gólfæfingar

Mads Pind Lochmann Jensen, stökkáhöld

Tanja Birgisdóttir, stökkáhöld

Blandað lið unglinga: 

Michal Říšský, gólfæfingar

Þorbjörn Jónsson, stökkáhöld

Þórdís Þöll Þráinsdóttir, stökkáhöld

Úrvalshópar 2024

Landsliðsþjálfarar hafa sett saman úrvalshóp A-landsliða fyrir árið 2024. Úrvalshópur er breytilegur yfir árið og því eiga allir möguleika á að komast í hóp. Ekki verður skipt í kvenna- og blandað lið fyrr en eftir Bikarmót. Dagskrá A-landsliða má finna hér. 

Iðkendum verður bætt í Sportabler hóp þar sem þeir fá allar nánari upplýsingar.

Styrktarþjálfun A-landsliða og félaga

Fimleikasambandið hefur gert samning við Oliver Bay varðandi styrktarprógram fyrir úrvals- og landsliðshópa A-landsliða Íslands (fullorðinslið) í hópfimleikum, frá janúar fram að EM 2024. Oliver er menntaður styrktarþjálfari og er starfandi landsliðsþjálfari Dana í powertumbling. 

Úrvalshópar mæta í mælingar til Oliver dagana 8.-10. janúar og í kjölfarið fá iðkendur einstaklingsmiðað styrktarprógram til að fylgja á félagsæfingum eða utan þeirra út maí 2024. 

Félögunum er boðið að kaupa prógram fyrir þá iðkendur sem eru ekki valdir í úrvalshóp í janúar. Eins geta iðkendur keypt prógramið sjálfir, ef félagið býður ekki upp á það. Með þessu móti getur hópurinn í heild sinni gert prógramið saman á félagsæfingum og við gefum öllum iðkendum sömu möguleika á að geta komist í úrvals-/landsliðshóp fyrir EM 2024.

Vilja einstaka iðkendur kaupa prógram sjálfir fá þeir nánari upplýsingar hjá sínu félagi. 

Við óskum öllum þjálfurum og iðkendum til hamingju og óskum þeim góðs gengis í komandi vinnu fyrir landslið Íslands. 

Áfram Ísland!