Select Page

Landsliðsþjálfarar, Ferenc Kováts, Róbert Kristmannsson og Sif Pálsdóttir, hafa tilnefnt einstaklinga sem skipa landsliðshópa og landslið fyrir sumarverkefnin 2022. Viðburðarríkt áhaldafimleikasumar er í vændum.

Verkefni sumarsins í fullorðinsflokki

Fyrsta verkefni sumarsins er Norðurlandamót sem fer fram í Gerplu, Versölum 2. – 3. júlí. Miðasala er hafin á Tix og frekari upplýsingar má lesa í frétt. Ísland stefnir á að senda sterkasta fimleikafólk landsins á Evrópumót sem fer fram í Munchen, Þýskalandi dagana 11. – 14. ágúst. Mótið í ár er fjölgreinamót þar sem níu íþróttagreinar mæta til leiks á stóra sviðið. Frekari upplýsingar um miðasölu og mótið má lesa í frétt.

Verkefni sumarsins í unglingaflokki

Keppt verður í unglingaflokki á Norðurlandamóti og Evrópumóti í sumar, að auki mun Ísland senda unglingalandslið á Ólympíuhátíð Evrópu Æskunnar (EYOF) sem fer fram í Slóvakíu dagana 24. – 30. júlí.

Landsliðshópana og landslið skipa:

Þjálfarateymi eftir verkefnum:

Norðurlandamót

  • Ferenc Kováts – konur
  • Sesselja Jarvela – konur
  • Róbert Kristmannsson – karlar
  • Viktor Kristmannsson – karlar
  • Jóhannes Níels Sigurðsson – stúlkur
  • Sif Pálsdóttir – stúlkur
  • Hróbjartur Pálmar Hilmarsson – drengir
  • Ólafur Garðar Gunnarsson – drengir

Ólympíuhátíð Evrópu Æskunnar – EYOF

  • Ólafur Garðar Gunnarsson – drengir
  • Jóhannes Níels Sigurðsson – stúlkur

Evrópumót

  • Ferenc Kováts – konur
  • Andrea Kováts-Fellner – konur
  • Róbert Kristmannsson – karlar
  • Viktor Kristmannsson – karlar
  • Jóhannes Níels Sigurðsson – stúlkur
  • Hróbjartur Pálmar Hilmarsson – drengir

Fimleikasamband Íslands óskar öllum iðkendum, foreldrum, þjálfurum og félögum innilega til hamingju og óskar þeim góðs gengis í undirbúningi fyrir mótin.