Ár er liðið frá því seinasta fimleikamót fór fram og eru það mikil gleðitíðindi að fá að keppa á ný.
Fyrsta mót vetrarins er Þrepamót 2, sem mun fara fram í íþróttahúsi Gerplu dagana 6. og 7. febrúar og verður keppt í 4.- 5. þrepi í stúlkna- og drengjaflokki. Mótaskipulagið má finna hér.
Mörg mót eru á dagskrá í febrúar:
- Þrepamót, 1. – 3. þrep
- Bikarmót unglinga í hópfimleikum
- GK-mót í hópfimleikum
- Bikarmót í stökkfimi
- Bikarmót í áhaldafimleikum
Mótaskrá vetrarins má sjá hér.
Mikil vinna hefur verið lögð í skipulagningu keppnistímabilsins og hvetjum við alla til að kynna sér covid reglurnar vel og njótum þess að fara keppa.