Íslensku keppendurnir á Evrópumótinu í áhaldafimleikum sem haldið er í Leipzig hafa lokið keppni.

Í kvennakeppninni voru það þær Hildur Maja Guðmundsdóttir og Thelma Aðalsteinsdóttir sem kepptu fyrir Íslands hönd. Hildur Maja, sem er að koma til baka eftir meiðsli, stóð sig mjög vel og varð í 42. sæti með 46,899 stig af 71 keppanda. Eftir eitt fall á slánni, sem var fyrsta áhald, hélt Hildur Maja ótrauð áfram og skilaði frábærum æfingum gólfinu, stökkið og tvísláin gengu vel og ljóst að Hildur Maja er að koma sterk til baka eftir meiðslin.
Thelma varð fyrir því óláni að slasa sig stuttu fyrir mót og keppti eingöngu á tvíslá að þessu sinni. Hún skilaði góðri æfingu uppá 12.400 stig.

Karlarnir kepptu í liðakeppninni í dag og var liðið skipað Atla Snæ Valgeirssyni, Ágústi Inga Davíðssyni, Degi Kára Ólafssyni og Valgarð Reinhardssyni. Alls kláraði liðið keppni með 217.761 stig, þegar þetta er skrifað er keppni ennþá í gangi og kemur í ljós seinna í dag hver loka niðurstaða liðsins verður. Liðið komst nokkuð klakklaust í gegnum mótið en föll á svifrá og bogahesti settu strik í reikninginn í dag. Efstur íslensku keppendanna varð Atli Snær Valgeirsson með 72,498 stig.
Fimleikasambandið óskar keppendum, þjálfurum til hamingju með mótið.
Áfram Ísland!