Select Page

Dagana 14. – 17. september verður hægt að horfa á alla keppnisdaga Evrópumótsins í hópfimleikum í beinni útsendingu. Á gamla PizzaHut svæðinu verður sett upp EM horn þar sem áhorfendur geta komið saman, horft á mótið á stórum skjá, skemmt sér saman og stutt okkar landslið.

Laugardaginn 17. september verður svo skemmtidagskrá og mikil fimleikagleði í Smáralindinni sem endar í EM horninu/FanZone þar sem við sameinumst og horfum á úrslitakeppni í kvenna- og karlaflokki.

Einnig verður mótið sýnt á litlum skjáum út um alla Smáralind þar sem að gangandi vegfarendur geta staldrað við og horft á þessa glæsilegu íþrótt sem fimleikar eru.

Frá og með 14. september verður Smáralindin skreytt, svo þegar kemur að stóra deginum, 17.september, þá verður boðið upp á fimleikaatriði, handstöðukeppni þar sem þú ert þátttakandi, circussýning frá Skemmtikraftaköllum, atriði úr Latabæ, blöðrur frá Blaðraranum, andlitsmálningu og svo munu HM farar í áhaldafimleikum gefa eiginhandaáritun. Sjá dagskrá hér að neðan.

ATH! Tímasetningar hafa breyst frá upphaflegu dagskránni (breytt 9. sept.).

VERTU MEÐ Í FIMLEIKAGLEÐINNI!

fimleikaveisla