Kvenna- og blandað lið Íslands tóku þátt í undankeppni Evrópumeistaramótsins í hópfimleikum í dag og unnu bæði liðin sér inn keppnisrétt í úrslitunum sem fara fram á laugardaginn.
Blandað lið Íslands var í stuði í dag en ljóst er að liðið á nóg inni fyrir laugardaginn. Það voru smávægileg mistök á æfingum á dýnu og trampólíni en liðið tryggði sér sæti í úrslitunum með 51.400 stigi.
”Markmið dagsins var að komast í gegnum útskurðinn, og við gerðum það. Það var geggjað og við stóðum okkur mjög vel. Við gerðum allt sem við ætluðum okkur og væntanlega er ekkert fullkomið í dag, því við ætlum að hafa allt fullkomið á laugardaginn. Það sem stóð mest uppúr var fyrst þegar við hlupum inn á fiber, að labba í gegnum reykinn og þessi blyss, sjá stúkuna. Það var alvöru upplifun. Maður er bara spenntur fyrir því að gera það aftur á laugardaginn og væntanlega verða miklu fleiri í höllinni.” Markús Pálsson – blandað lið
”Liðsandinn var mjög góður. Byrjuðum í upphitun rétt í kringum hádegi og byrjuðum svo á dýnu. Við vorum með eitt fall og einhverja mínusa sem við hefðum getað sleppt. Trampólínið var ótrúlega flott og við ætlum að reyna að vera ennþá betri á laugardaginn. Við eigum líka fullt af stigum inni í dansinum, þannig að við erum mjög spennt fyrir laugardeginum. Dagurinn var allt í allt mjög góður.“
Varðandi breytingar fyrir úrslitin: “Við erum á mjög góðum stað, liðslega séð. Við erum með mjög gott vopnabúr af fólki og stökkum, þannig að það er allt í boði. Ég held að það verði bara góður liðsfundur á eftir, farið yfir mótið, horft á videó og tekin lokaákvörðun út frá því.” Stefán Ísak Stefánsson, þjálfari – blandað lið

Kvennaliðið endaði daginn í öðru sæti með 53.250 stig aðeins 0.300 stigum frá sænska liðinu og því er ljóst það verður hart barist um gullið á laugardaginn og er í Ísland í góðri stöðu.
“Dagurinn gekk bara fínt, við erum allar heilar og það var markmiðið. Við getum bætt eitthvað á hverju einasta áhaldi og það er bara allt í lagi. Það gekk allt fínt í upphitun, einhverjir hnökrar inni í sal en ekkert sem við höfum áhyggjur af. Við vitum alveg að þær munu negla þetta á laugardaginn. Það verður einhver breyting á liðinu en þær eru allar tilbúnar að hoppa inn í allt. Við erum með mjög gott back-up plan í öllu. Við eigum eftir að fara yfir hlutina með þeim, en við keyrum á sama erfiðleika og neglum þetta á réttum tíma.” Andrea Sif Pétursdóttir, þjálfari – kvennalið
“Mótið gekk bara ágætlega. Það voru smá hnökrar hér og þar sem við ætlum að bæta á laugardaginn. Markmiðið var að eiga góðan dag í dag en ekki toppa okkur, það ætlum við að gera á laugardaginn. En mikil og mjög góð liðsheild, geggjuð stemning í höllinni og bara sjúklega gaman.“ Victoria Ann Vokes, kvennalið
Við óskum keppendum og þjálfurum innilega til hamingju með árangur dagsins. RÚV verður með beina útsendingu af úrslitadegi fullorðinna á laugardaginn. Tímasetningar má finna hér


Úrslit U18 liðanna fer fram á morgun, þar sem Ísland á lið í öllum flokkum og stúlknaliðið var fyrsta liðið inní úrslit. Það verður spennandi að fylgjast með unglingunum á morgun. Hvetjum alla til að fylgjast með spennandi keppni, streymi er hægt að finna hér og hér má fylgjast með einkunnum mótsins.
Myndir: https://fimleikasambandislands.smugmug.com
Næst á dagskrá:
Föstudagur 16. október – úrslit í unglingaflokki
- 11:20-13:05 Drengjalið
- 13:20-15:05 Blandað lið unglinga
- 15:20-17:30 Stúlknalið
ÁFRAM ÍSLAND!