Select Page

Íslensku mættu til Finnlands í gær þar sem Evrópumót í hópfimleikum fer fram dagana 14.-17. október.

Æfingar U18 fara fram í dag, en blandaða lið fullorðna og kvennaliðið æfa í keppnishöllinni á morgun. Mótið hefst einnig á morgun, þar sem undankeppni U18 fer fram og á fimmtudag hefst undankeppni í fullorðinsflokki. Hér að neðan má sjá yfirlit yfir tímasetningar á keppnisdögum (á íslenskum tíma).

Miðvikudagur 14. október – undanúrslit í unglingaflokki

  • 13:00-14:25 Drengjalið 🇮🇸
  • 14:40-16:05 Blandað lið unglinga 🇮🇸
  • 16:15-19:05 Stúlknalið 🇮🇸

Fimmtudagur 15. október – undanúrslit í fullorðinsflokki

  • 10:00-12:45 Blandað lið fullorðinna 🇮🇸
  • 13:00-14:55 Kvennalið 🇮🇸
  • 15:15-16:40 Karlalið

Föstudagur 16. október – úrslit í unglingaflokki

  • 11:20-13:05 Drengjalið
  • 13:20-15:05 Blandað lið unglinga
  • 15:20-17:30 Stúlknalið

Laugardagur 17. október – úrslit í fullorðinsflokki

  • 10:00-11:45 Blandað lið fullorðinna
  • 12:00-13:45 Kvennalið
  • 14:00-15:45 Karlalið

Hér má finna heimasíðu mótsins.

Hér verður hægt að fylgjast með einkunnum.

Hér er hægt að kaupa beint streymi frá undanúrslitunum (25€).

Úrslitin í beinni frá RÚV

RÚV verður með beina útsendingu af úrslitunum á laugardaginn

  • Blandað lið keppir kl. 9:50
  • Kvennaliðið keppir kl. 11:55
  • Ísland sendir ekki karlalið að þessu sinni en mælum með að horfa á æsispennandi keppni hjá karlaliðunum frá kl 14:00.

ÁFRAM ÍSLAND!