Þvílíkur árangur hjá landsliðunum okkar í áhaldafimleikum á heimsbikarmóti í Koper, Slóveníu. Í gær fór fram fyrri undanúrslitadagur þar sem konur kepptu á stökki og tvíslá og karlar á gólfi, bogahesti og hringjum. Seinni undanúrslitadagurinn var svo í dag þar sem konur kepptu á slá og gólfi og karlar á stökki, tvíslá og svifrá.
Auður Anna Þorbjarnardóttir úr Stjörnunni er að keppa á sínu fyrsta heimsbikarmóti og í sínu fyrsta landsliðsverkefni í fullorðinsflokki. Hún keppti á stökki og gerði sér lítið fyrir og flaug inn í úrslitin sem fara fram á morgun. Þeir Jónas Ingi Þórisson og Ágúst Ingi Davíðsson úr Gerplu áttu stórkostlegan dag á gólfinu í gær og komust báðir inn í úrslitin með sömu einkunn 13.133. Á seinni undanúrslitadegi bættist Dagur Kári Ólafsson úr Gerplu í hópinn þegar hann komst inn í úrslit á tvíslá með frábærri æfingu í dag.
Auk úrslitafólksins okkar kepptu á mótinu þau Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Kristjana Ósk Ólafsdóttir og Atli Snær Valgeirsson öll úr Gerplu. Lilja Katrín sem kom beint til Koper af heimsbikarmótinu í Tashkent keppti á tvíslá, slá og gólfi, Kristjana Ósk keppti á slá og gólfi og Atli Snær keppti á hringjum og svifrá. Frábær árangur hjá öllum okkar keppendum og við hlökkum til helgarinnar og komandi úrslita.
Dagskrá
Laugardagurinn 30. maí
Úrslit á gólfi kl. 09:20 – Jónas Ingi og Ágúst Ingi
Úrslit á stökki kl. 10:00 – Auður Anna
Úrslit á hringjum kl. 11:45 – Ágúst Ingi, varamaður
Sunnudagurinn 31. maí
Úrslit hefjast kl.09:35, ekki komin nákvæmur tími á tvíslá – Dagur Kári
Við óskum keppendum og þjálfurum innilega til hamingju með mótið og óskum úrslitafólki góðs gengis um helgina.





