Í dag fór fram Norðurlandamót unglinga í hópfimleikum í Sola, Noregi. Ísland sendi fimm sterk lið til keppni, það sem stóð upp í dag úr var þegar að kvennalið Gerplu sóttu sér silfur og karlalið Stjörnunnar brons.
Dagurinn hófst á keppni blandaðra liða þar sem Gerpla Mix og Selfoss Mix sýndu flotta fimleika. Selfoss Mix hafði betur í keppninni milli íslensku liðanna en þau höfnuðu í 5. sætinu með 42.050 stig, Gerpla Mix höfnuðu í því sjötta með 41.600 stig. Norska liðið Sandnes sigraði örugglega með 46.400 stig.
Þá tóku kvennaliðið við þar sem fulltrúar Íslands voru einnig frá Selfoss og Gerplu. Liðskonur Gerplu mættu heldur betur vel stemmdar til keppni þar sem þær voru hársbreidd frá því að landa Norðurlandatitlinum, þær fara sáttar heim með silfur um hálsinn. Kvennalið Selfoss mættu einnig einbeittar til keppni í dag, mistök á trampólínu voru dýrkeypt en höfnuðu þær í fimmta sæti aðeins 0.350 frá bronsinu.
Síðast en alls ekki síst var það karlalið Stjörnunnar sem mættu til keppni. Þeir mættu öruggir og áttu nánast fullkomið mót, sem gaf þeim þriðja sætið í keppni við mjög sterk lið. Algjörlega frábær endir á góðum degi.
Það má segja að íslensku liðin séu á frábærri siglingu og stefnir í spennandi Evrópumót sem fer fram í haust.
Fimleikasamband Íslands óskar keppendum, þjálfurum og félögum innilega til hamingju með árangurinn á Norðurlandamóti unglinga í dag.






