Select Page

Bikarmót í áhalda- og hópfimleikum fer fram helgina 20.-22. mars næstkomandi í Fjölni, Egilshöll. Mótið markar upphaf keppnistímabilsins hjá mörgum og er einn af hápunktum vetrarins í íslenskum fimleikum.

Fremsta fimleikafólk landsins mun mæta til leiks og keppa um bikarmeistaratitlana í bæði áhaldafimleikum og hópfimleikum. Búast má við spennandi keppni, glæsilegum æfingum og frábærri stemningu í salnum.

Sterk lið skráð til keppni

Fjölmörg félög víðs vegar af landinu senda keppendur og lið til keppni og ljóst að baráttan um titlana verður hörð. Áhorfendur fá tækifæri til þess að sjá bæði unga og efnilega keppendur stíga sín fyrstu skref á keppnisgólfinu sem og reynda keppendur framkvæma ótrúlega fimleika.

Hápunktur í keppni í áhaldafimleikum á laugardaginn

Á laugardeginum 21. mars verður keppt í frjálsum æfingum, en innmars hefst kl. 12:45. Sex karla- og sex kvennalið eru skráð til keppni, þar með talin eru fimleikafólk ársins 2025 þau Hildur Maja Guðmundsdóttir og Dagur Kári Ólafsson meðal.

Hápunktur í keppni í hópfimleika á sunnudaginn

Sunnudaginn 22. mars kl. 13:55 hefst svo keppni hjá meistaraflokkum í hópfimleikum. Ríkjandi í karla- og kvennaflokki freysta þess að verja titilinn.

Þéttpökkuð dagskrá alla helgina

Bikarmótið hefst á föstudaginn 20. mars með keppni í 3 flokk A deild. Keppni í áhaldafimleikum hefst svo laugardaginn 21. mars á 3 þrepi kvk – B deild. Öll helgin verður þéttpökkuð og keppni fer fram í báðum keppnissölunum frá morgni til kvölds.

👉 Skipulag keppninnar má finna hér fyrir áhaldafimleika og hópfimleika.

Miðasala fer fram í hurð.

Keppni í beinni á RÚV

RÚV mun sýna keppni í frjálsum æfingum og meistaraflokki í beinni útsendingu:

  • 21. mars kl. 13:15 – Bikarmót í áhaldafimleikum
  • 22. mars kl. 14:00 – Bikarmót í hópfimleikum

Fimleikasamband Íslands óskar keppendum góðs gengis og áhorfendum góðrar skemmtunar!

📸 Myndir frá mótinu verða birtar hér.

Hér er svo hlekkur á bein útslit.