Select Page

Það vill enginn missa af þessari sýningu! Verdensholdet er danskur sýningarhópur sem er þekktur fyrir stórkostlegar sýningar og eru nú í fyrsta sinn á Íslandi.

Verdensholdet fer annað hvert ár í stóra sýningarferð um heiminn. Inntökupróf eru í hópinn fyrir hverja sýningarferð og samanstendur hópurinn í lokin af 28 fimleikamönnum og konum. Hópurinn verður á Íslandi í þrjár vikur og ferðast um landið með stutta útgáfu af sýningunni ásamt því að vera með „workshop“ fyrir þjálfara og iðkendur á hverjum stað. Hópurinn kemur við á Selfossi, Egilsstöðum, Akranesi og Reykjavík.

Stóra sýningin þeirra verður í Ásgarði í Garðabæ föstudaginn 13.mars, hér má kaupa miða á sýninguna í gegnum Stubb appið.

Meira um Verdensholdet hér.