Select Page

Valgarð Reinhardsson úr Gerplu, vann sinn fimmta Íslandsmeistaratitil í dag, rúmum þremur stigum á undan næsta manni. Nanna Guðmundsdóttir úr Gróttu vann í kvennaflokki og er þetta hennar fyrsti Íslandsmeistaratitill í fjölþraut. Mótið fór fram í Ármanni og var sýnt í beinni útsendingu á RÚV. Myndir af mótinu má finna hér á myndasíðu sambandsins.

Valgarð fékk 79.000 stig fyrir æfingar sínar en hann hefur sigrað í fjölþraut árin 2015, 2017, 2018, 2019 og 2021. Þess má geta að ekkert Íslandsmót var haldið í fyrra sökum Covid-19. Í öðru sæti var Íslandsmeistari unglinga frá því í fyrra, Jónas Ingi Þórisson sem var að keppa í fyrsta skipti í fullorðinsflokki með 75.950 stig. Í þriðja sæti með 71.700 stig var Eyþór Örn Baldursson.

Í kvennaflokki hafði Nanna Guðmundsdóttir úr Gróttu sigur úr býtum og var þetta hennar fyrsti Íslandsmeistaratitill í fjölþraut. Keppni dagsins var spennandi í kvennaflokki en einungis munaði hálfu stigi á milli Nönnu og Hildar Maju Guðmundsdóttur úr Gerplu. Nanna sigraði með 45.700 stig og Hildur Maja varð í öðru með 45.200 stig. Bronsið féll í skaut Margrétar Leu Kristinsdóttur úr Björk, en hún hlaut 43.800 stig.

Dagur Kári og Freyja Íslandsmeistarar unglinga

Dagur Kári Ólafsson úr Gerplu sigraði örugglega í unglingaflokki karla með 73.400 stig, heilum 8 stigum á undan Sigurði Ara Sigurðssyni úr Fjölni sem fékk 65.400 stig. Í þriðja sæti var Ágúst Ingi Davíðsson úr Gerplu með 64.800 stig.

Freyja Hannesdóttir úr Gróttu varð í fyrsta sæti í unglingaflokki kvenna með 44.250, í öðru sæti varð Ragnheiður Jenný Jóhannsdóttir úr Björk með 43.100 stig og í því þriðja Svanhildur Nielsen Hlynsdóttir úr Ármanni með 40.700 stig.

Úrslit á einstökum á höldum

Á morgun fara fram úrslit á einstökum áhöldum, þar sem 5 hæstu keppendur á hverju áhaldi berjast um Íslandsmeistaratitilinn á áhaldinu. Keppnin hefst kl. 15:00 í fimleikahúsi Ármanns, Laugarbóli og verður mótið sýnt í beinni útsendingu á RÚV.