Landsliðsþjálfararnir Róbert Kristmannsson, Þorgeir Ívarsson og Hróbjartur Pálmar Hilmarsson hafa valið úrvalshópa fyrir keppnisárið 2026.
Opnar æfingar fóru fram í lok janúar og byrjun febrúar, vel heppnaðar æfingar þar sem mikill fjöldi fimleikafólks spreytti sig. Fimmtudaginn næstkomandi fer svo fram opin æfing í unglingaflokki áhaldafimleikum kvenna og í framhaldi birtum við lista yfir val Agnesar Suto, landsliðsþjálfara á meðlimum í úrvalshóp unglinga.
Fimleikasamband Íslands kynnir með stolti úrvalshópa fullorðna (kvenna og karla) og unglinga í áhaldafimleikum karla, innilega til hamingju.


