Úrslitakeppni í unglingaflokki á Evrópumótinu í hópfimleikum fór fram í dag. Drengjaliðið var fyrsta liðið til að stíga á keppnisgólfið, þar sem strákarnir okkar sýndu 3 glæsilegar umferðir á trampólíni, og flottan dans. Liðsumferðin á dýnu gekk mjög vel en nokkur mistök voru gerð í umferð 2 og 3. Þeir fengu 44,800 í heildina og enduðu í 5. sæti, en bættu einkunnina um 2,5 stig frá undanúrslitum.


Blandaða lið Íslands mætti með sjálfstraustið í botni og sýndu frábærar umferðir á dýnu. Næsta áhald var trampólín og nýttu þau greinilega orkuna, þar sem þau bættu trampólíneinkunnina frá undanúrslitum um 2 stig eftir þrjár glæsilegar umferðir með háan erfiðleika. Liðið náði einnig að bæta einkunnina í dansinum og voru mjög nálægt því að komast uppá pall. Liðið endaði í 4. sæti með 47,600 stig.


Næst kom að stúlknaliðinu. Þær voru geislandi og kraftmiklar, tilbúnar í daginn og sýndu örugg og flott stökk á dýnu. Þær voru einnig glæsilegar á gólfinu og uppskáru frábæra einkunn en röð mistaka trampólíni varð til þess að þær lentu í 6. sæti, en þær nældu sér í mikilvæga reynslu í þessari keppni sem þær munu nýta í komandi framtíð.


Fimleikasambandið óskar öllum keppendum og þjálfurum innilega til hamingju með árangurinn.
Myndiirnar frá deginum má finna hér.
Laugardagur 17. október – úrslit í fullorðinsflokki
Úrslitin halda áfram á morgun þegar A landslið Íslands munu keppa um toppsætin. Blandaða liðið byrjar klukkan 9:50 á íslenskum tíma og kvennaliðið stígur á gólf klukkan 11:55. Ísland sendir ekki karlalið að þessu sinni en mælum með að horfa á æsispennandi keppni hjá karlaliðunum frá kl 14:00 Úrslitin verða sýnd á RÚV.