Select Page

Í dag kepptu þau Auður Anna Þorbjarnardóttir, Ágúst Ingi Davíðsson og Jónas Ingi Þórisson til úrslita á áhöldum á heimsbikarmóti í Koper, Slóveníu.

Fyrstur af íslensku keppendunum var Jónas Ingi en hann keppti á gólfi og framkvæmdi frábæra seríu í dag sem skilaði honum 6.sæti. Ágúst Ingi keppti einnig á gólfinu og skilaði sínu vel og hafnaði í 8.sæti. Einungis munaði 0,234 á 3. og 8.sæti, þannig mjótt var á mununum á gólfinu í dag og hvert auka skref dýrt í framkvæmd.

Auður Anna steig síðust af okkar fólki á sviðið í dag þegar hún keppti á stökki og hafnaði í 7.sæti. Í úrslitum á stökki þarf að framkvæma tvö mismunandi stökk og það gerði Auður Anna af mikilli fagmennsku. Hún framkvæmdi bæði stökkin svakalega vel og má ganga sátt frá þessu fyrsta heimsbikarmóti sínu.

Á morgun keppi Dagur Kári Ólafsson til úrslita á tvíslá og hefst keppni kl.10:50 að íslenskum tíma.

Hér er beint streymi frá úrslitum.

Úrslitin má finna í Elevien appinu.

Hér eru myndir frá mótinu.

Við óskum keppendum og þjálfurum innilega til hamingju með árangur dagsins og óskum Degi Kára góðs gengis á morgun.