Frábærum degi hér í Cottbus, Þýskalandi að ljúka. Þar sem hann Ágúst Ingi Davíðsson keppti meðal þeirra allra bestu á tvíslánni á Heimsbikarmóti.
Ágúst Ingi mætti yfirvegaður til keppni, framkvæmdi frábæra æfingu, ennþá betri en í undanúrslitunum og fékk 13.366 stig fyrir. Hækkun frá undanúrslitum og hækkun um tvö sæti, Ágúst fer heim reynslunni ríkari og þyrstur í ennþá meira. 6. sætið er hreint ótrúlegur árangur og skilar það honum mikilvægum stigum í stigabaráttu um sæti á Heimsmeistaramótið sem fer fram í Rotterdam í haust. Japaninn Shohei Kawakami sigraði örugglega með 14.866 stig.
Hér er hægt að skoða úrslitin.
Hér verða birtar myndir.
Fimleikasamband Íslands óskar Ágústi Ingi, Gerplu og þjálfurum innilega til hamingju með frábæran árangur um helgina.


