Þeir Kári Hjaltason og Þorsteinn Orri Ólafsson voru fulltrúar Íslands í unglingalandsliðinu á Evrópumótinu í Zagreb. Þetta var fyrsta Evprópumót þeirra beggja og mikill spenningur í strákunum fyrir mót.
Strákarnir stóðu sig með prýði í Zagreb í dag og óhætt að segja að stóra sviðið hræddi þá ekki. Þeir komust vel frá öllum sínum æfingum og mega ganga stoltir frá borði. Það er búið að vera mikið að gera hjá þeim félögum upp á síðkastið en í byrjun júlí kepptu þeir á Junior team cup í Berlín og í lok júlí á Norðurlandamóti í Álandseyjum.
Það má því segja að reynslubankinn sé galopin hjá okkar mönnum og þeir hafa svo sannarlega lagt inn í hann í sumar.
Þjálfarar á mótinu voru Hróbjartur Pálmar Hilmarsson og Ólafur Garðar Gunnarsson.





Við óskum þeim innilega til hamingju með mótið og hlökkum til fylgjast með þeim í framtíðinni.