Select Page

01/12/2021

Unglingalandsliðin örugg inn í úrslitin á EM

Stúlknalandslið Íslands og blandað lið unglinga flugu inn í úrslitin á EM á föstudaginn eftir að hafa bæði lent í þriðja sæti í undankeppninni í kvöld.

Efstu sex liðin í hverjum flokki ná inn í úrslitin sem fara fram á föstudaginn 3. Desember. Sýnt verður frá úrslitunum í beinni á netinu.

Bæði lið áttu gott mót þótt einkunnir hjá stúlknaliðinu tóku smá dýfu en smávægileg mistök í liðsumferð enduðu dýrkeypt. Liðin hafa nú smá tíma til að fara yfir mótið með þjálfurunum sínum og gera breytingar fyrir úrslitin.

Stúlknalandsliðið endaði með 50.175 stig einungis 0.1 stigi á eftir Bretlandi sem endaði í öðru sæti. Svíarnir voru efstir með 53.650 stig.

Blandaða unglingalandsliðið endaði með 47.475 stig, 2.5 stigum á eftir Svíþjóð sem var í öðru sæti með 49.00. Blandaða breska unglingalandsliðið tók fyrsta sætið í undankeppninni með 50.225 stig.

Heildarniðurstöður dagsins má sjá hér.

Undanúrslit í fullorðinsflokkum fara svo fram á morgun:

Kvennaliðið keppir klukkan 16:30 og karlaliðið klukkan 19:00.

Beint streymi frá mótinu á morgun má finna hér.

Fleiri fréttir

Mánuður í EM

Mánuður í EM

Þessa dagana eru úrtökumót og úrvalshópaæfingar í fullorðinsflokkum í fullum gangi. Mikil samkeppni er um sæti í landsliði Íslands sem tekur þátt í...

Bikarmeistarar í hópfimleikum

Bikarmeistarar í hópfimleikum

Bikarmót í hópfimleikum fór fram í Íþróttahúsinu Digranesi um helgina í umsjón Íþróttafélagsins Gerplu. Mótið hófst á keppni í 1.flokki og KKE á...