Landsliðsþjálfarar unglinga hafa valið landslið fyrir Evrópumót í hópfimleikum 2026.
Mótið er haldið hátíðlega dagana 14. – 17. október í Espoo, Finnlandi.
Stefnt er að því að senda þrjú unglingalandslið á mótið og hefur val í landslið tekið mið af þeirri áætlun.
Næsta æfing liðanna er gólfæfing 7. júní og koma nánari upplýsingar um tímasetningu og staðsetningu fyrir hvert lið þegar nær dregur. Æfingum verður einnig bætt við inn í uppfærðan Abler hóp.
Landsliðsþjálfarar hafa haldið vel utanum niðurstöður og gengi móta á 2025-2026 tímabilinu, bæði myndefni og töluleg gögn. Þeir hafa einnig haft til hliðsjónar úrtökuæfinguna í maí við val í hópinn.
Landsliðsþjálfarar áskila sér rétt til breytinga.
Landslið Íslands skipa:



Fimleikasasamband Íslands óskar iðkendum, þjálfurum og félögum innilega til hamingju og þökkum öllum sem tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna.
Áfram Ísland!
#fyririsland
#islenskirfimleikar
#fimleikarfyriralla