Select Page

Nú hefur verið formlega opnað fyrir umsóknir um sæti formanna tækni- og fastanefnda FSÍ.

Tækninefndir FSÍ; áhaldafimleikar karla, áhaldafimleika kvenna og hópfimleikar

Starfstímabil nefndanna er hinn sami og stjórnar eða 2020-2022.

Formaður tækninefndar er í forsvari fyrir nefndina og hefur ásamt öðrum fulltrúum í nefndinni eftirlit með framkvæmd mótaðrar stefnu á verksviði nefndarinnar. Leitast er við að formaður hverrar nefndar sé alþjóðlegur dómari sé þess kostur.

Umsóknum skal skila til framkvæmdarstjóra á netfangið fsi@fimleikasamband.is eigi seinna en á miðnætti miðvikudaginn 30. september 2020.

Fastanefndir FSÍ; nefnd um fimleikar fyrir alla og fræðslunefnd

Starfstímabil nefndanna er hinn sami og stjórnar eða 2020-2022.

Formaður fastanefndar er í forsvari fyrir nefndina og hefur ásamt öðrum fulltrúum í nefndinni eftirlit með framkvæmd mótaðrar stefnu á verksviði nefndarinnar.

Umsóknum skal skila til framkvæmdarstjóra á netfangið fsi@fimleikasamband.is eigi seinna en á miðnætti miðvikudaginn 30. september 2020.

Tilnefningar í tækni- og fastanefndir

Óskað er eftir tilnefningum í eftirfarandi nefndir:

  • fjögurra manna tækninefnd karla í áhaldafimleikum,
  • fjögurra manna tækninefnd kvenna í áhaldafimleikum,
  • fjögurra manna tækninefnd í hópfimleikum,
  • fjögurra manna nefnd um fimleika fyrir alla,
  • fjögurra manna fræðslunefnd,
  • þriggja manna nefnda um fjáröflunar- og markaðsmál.

Umsóknum skal skila til framkvæmdarstjóra á netfangið fsi@fimleikasamband.is eigi seinna en á miðnætti miðvikudaginn 30. september 2020.