Select Page

Unglingalandslið Íslands í áhaldafimleikum, náði frábærum árangri á International Junior Team Cup, sterku unglingamóti sem fór fram í Berlín um helgina. Liðið skipuðu þeir Rökkvi Kárason, Kári Pálmason, Þorsteinn Orri Ólafsson og Sólon Sverrisson.

Allir stóðu þeir sig með miklum sóma og lauku þeir keppni í undanúrslitum með 199,600 stig. Í úrslitum bættu Kári og Sólon um betur og tryggðu sér sitthvor verðlaunin. Kári tryggði sér 2. sæti á svifrá með einkunnina 12,100, en hann bætti við æfinguna frá undanúrslitum og framkvæmdi tvöfalt heljarstökk með heilli skrúfu yfir svifrána, sem hann greip aftur með öryggi. Áhættan sem fylgdi þessari flóknu flugæfingu skilaði sér svo sannarlega.

Sólon keppti til úrslita á stökki og hafnaði í 3. sæti með einkunnina 12,450 eftir tvö glæsileg stökk. Þetta er frábær árangur hjá íslenska unglingalandsliðinu og mikilvægt skref í undirbúningi þeirra fyrir Norðurlandamótið sem fer fram helgina 7. – 8. júní næstkomandi.

Með þeim í för voru þeir Hróbjartur Pálmar Hilmarsson, Ólafur Garðar Gunnarsson og Björn Magnús Tómasson.

Fimleikasamband Íslands óskar keppendum, þjálfurum og félögum innilega til hamingju með árangurinn um helgina, sérstakar hamingjuóskir til Þorsteins sem var að taka þátt í sínu fyrsta landsliðsverkefni.