Seinni úrslitadagur heimsbikarmótsins í Kaíró í Egyptalandi fór fram í dag. Thelma Aðalsteinsdóttir tryggði sér örugglega sæti í úrslitum á gólfi eftir frábærar æfingar í undanúrslitunum. Frammistaða hennar í dag var ekki síðri, hún geislaði á gólfinu og vakti athygli áhorfenda um allan heim. Alþjóðafimleikasambandið, World Gymnastics, deildi myndbandi af æfingu hennar á Instagram með yfirskriftinni: “Thelma Aðalsteinsdóttir floor = must watch!”
Thelma sýndi enn og aftur hversu öflug hún er á gólfinu. Hún hlaut 12.300 stig fyrir æfinguna sína í dag, sem skilaði henni 6. sæti á sterku heimsbikarmóti í Kaíró — algjörlega frábær árangur. Kínverska fimleikakonan KE Qinqin bar sigur úr býtum með 12.966 stig.
Thelma átti frábæran dag og skilaði öllu sínu. Ég er stoltur og spenntur fyrir komandi tímum, Ísland er á uppleið. – Þorgeir Ívarsson, landsliðsþjálfari kvenna.
Fimleikasamband Íslands óskar Thelmu, þjálfurum hennar og Gerplu innilega til hamingju með árangurinn.
Hér er hægt að skoða úrslitin.
Hér verða birtar myndir.
Einnig minnum við á að hægt er að skoða myndbönd frá keppninni á samfélagsmiðlum okkar og í Elevien appinu.

