Select Page

Í dag fóru fram podiumæfingar hjá þeim Thelmu Aðalsteinsdóttur og Lilju Katrínu Gunnarsdóttur sem staddar eru á Heimsmeistaramótinu í Rotterdam, Hollandi. Thelma keppir sem sérfræðingur á slá og gólfi og Lilja sem fjölþrautarkeppandi.

Á föstudaginn barst FSÍ og Thelmu þær fréttir að henni bauðst fjölþrautarsæti, en þar sem Thelma er ennþá að jafna sig eftir puttabrot og hefur ekki getað æft tvíslá af fullum krafti var tekin ákvörðun um að hafna boðinu og einbeita sér að slánni og gólfinu.

„Mitt helsta markmið er að njóta og lifa í núinu“ – segir Thelma eftir æfingu dagsins um næstu daga.

Podiumæfingin í dag gekk smurt fyrir sig, það er mikil ró og yfirvegun yfir okkar konum og eru þær tilbúnar fyrir stóra daginn, en keppa þær báðar mánudaginn 19. október.

Það er hinsvegar alveg að skella á karlakeppnina, undanúrslitin hefjast á morgun og keppa þeir Dagur Kári Ólafsson og Ágúst Ingi Davíðsson í hluta 3 kl. 14:00 á íslenskum tíma.

„Stemmningin er bara virkilega góð hjá mér og Degi Kára, við erum tílbúnir – let’s gooo!“ – segir Ágúst Ingi sem er spenntur fyrir morgundeginum.

Keppnisdagskrá (íslenskir tímar)

Laugardagurinn 17. október – undankeppni karla

  • Sub 1 – kl. 08:00
  • Sub 2 – kl. 10:10
  • Sub 3 – kl. 14:00 – hér keppa Dagur og Ágúst í fjölþraut
  • Sub 4 – kl. 16:10

Sunnudagurinn 18. október – undankeppni karla framhald og undankeppni kvenna hefst

  • Sub 5 – kl. 08:00
  • Sub 6 – kl. 10:10
  • Sub 1 í kvennakeppninni – kl. 14:00
  • Sub 2 – kl. 15:50
  • Sub 3 – kl. 17:40

Mánudagurinn 19. október – undankeppni kvenna framhald

  • Sub 4 – kl. 07:30
  • Sub 5 – kl. 09:00
  • Sub 6 – kl. 10:40
  • Sub 7 – kl. 14:00 – Hér keppir Thelma á slá og gólfi
  • Sub 8 – kl. 15:35
  • Sub 9 – kl. 17:35 – Hér keppir Lilja í fjölþraut
  • Sub 10 – kl. 19:10

Þriðjudagurinn 20. október – Liða úrslit karla – Í BEINNI Á RÚV 2

  • kl. 17:30

Miðvikudagurinn 21. október – Liða úrslit kvenna – Í BEINNI Á RÚV 2

  • kl. 17:30

Fimmtudagurinn 22. október – fjölþrautarúrslit karla – Í BEINNI Á RÚV 2

  • kl. 17:30

Föstudagurinn 23. október – fjölþrautarúrslit kvenna – Í BEINNI Á RÚV 2

  • kl. 17:30

Laugardagurinn 24. október – úrslit á einstökum áhöldum, dagur 1 – Í BEINNI Á RÚV

  • kl. 12:00

Sunnudagurinn 25. október – úrslit á einstökum áhöldum, dagur 2 – Í BEINNI Á RÚV

  • kl. 12:00

Hér er hægt að streyma undanúrslitum og fylgjast með einkunnum.

Myndir frá okkur verða birtar hér.

Fimleikasamband Íslands óskar keppendum góðs gengis og hlökkum við mikið til að fylgjast með ykkur á stóra sviðinu!

ÁFRAM ÍSLAND!