Rétt í þessu bárust okkur þau gleðitíðindi frá Alþjóðafimleikasambandinu, World Gymnastics, að Thelmu Aðalsteinsdóttur hefur verið boðið sæti á HM í Rotterdam sem sérfræðingur á slá. Sætið fær hún í kjölfar góðs árangurs á heimsbikarmótaröðinni í vor.
Thelma hafði áður tryggt sér sæti á gólfi og höfðum við haldið í vonina um að sæti á slá myndi einnig nást. Hún hefur því verið dugleg að halda slánni inni í undirbúningi sínum samhliða æfingum fyrir gólf og er því meira en tilbúin í slaginn á báðum áhöldum.
Fimleikasamband Íslands óskar Thelmu innilega til hamingju með sætið og óskar henni, Lilju Katrínu Gunnarsdóttur, Ágústi Inga Davíðssyni og Degi Kára Ólafssyni góðs gengis á lokametrunum í undirbúningi fyrir stærsta mót vetrarins – heimsmeistaramótið.
