Frábærum undanúrslitadögum á heimsbikarmóti í Kaíró, Egyptalandi að ljúka. Thelma inni í úrslitum á gólfi og mikilvæg stig í hús!
Í gær kepptu Thelma Aðalsteinsdóttir og Lilja Katrín Gunnarsdóttir á tvíslánni, gekk það vel og höfnuðu þær í 21. og 17. sætinu. Lilja Katrín í því 17. með 11.966 stig og Thelma í því 21. með 11.733 stig. Í dag tók svo gólfið og sláin við, Hildur Maja framkvæmdi glæsilega sláaræfingu, reyndi hún við erfiðan píróett sem varð henni að falli í dag, æfingin skilaði henni 11.466 og 18. sætinu, Hildur Maja er að koma sterk til baka eftir meiðsli sem hafa verið að hrjá hana síðastliðnar vikur.
Thelma keppti bæði á slá og gólfi í dag, á báðum áhöldum framkvæmdi hún nánast hnökralausar æfingar og skilaði það henni örugglega inn í úrslit á gólfinu með 12.366 stig í 4. sætinu inn, en aðeins 8 keppendur komast inn í úrslitin. Sláin var ekki síðri þar sem æfingin í dag skilaði henni 12.333 stigum og 11.sætinu, ekki langt frá úrslitasæti en þurfti 12.600 til þess að komast inn í úrslitin. Alveg hreint frábær dagur hjá henni Thelmu sem fer heim með mikilvæg stig á báðum áhöldum í stigasöfnun fyrir HM í haust.
Lilja Katrín mætti vel stemmd til keppni á gólfinu, því miður varð óheppilegt fall strax í byrjun æfingar og fékk hún 10.700 stig, 27. sæti og mikilvæga reynslu í reynslubankann í dag.
Á morgun hefjast úrslitin, Thelma keppir þó ekki fyrr en á mánudag. úrslitin verða streymd í beinni og hvetjum við allt fimleikaáhugafólk til þess að fylgjast með Thelmu stíga á stóra sviðið í beinni.
Dagskrá
Sunnudagurinn 5. apríl
- Úrslit á stökki kl. 11:40*
- Úrslit á tvíslá kl. 12:50*
Mánudagurinn 6. apríl
- Úrslit á slá kl. 11:00*
- Úrslit á gólfi kl. 12:05*
*íslenskur tími
Beint streymi
Hér verður hægt að horfa á beint streymi.
Hér verða birtar myndir.
Fimleikasamband Íslands óskar stelpunum okkar, þjálfurum og Gerplu innilega til hamingju með árangurinn og Thelmu góðs gengis í úrslitum.



