Select Page

Góðum degi á Norður Evrópumótinu í áhaldafimleikum var rétt í þessu að ljúka. Hápunktur dagsins er klárlega gengi Thelmu Aðalsteinsdóttur á tvíslánni, Thelma er nýkrýndur Norður Evrópumeistari á tvíslánni.

Thelma mætti vel stemmd til keppni á tvíslánni þar sem hún vann sér inn keppnisrétt í úrslitum með frábærri tvísláarseríu í gær. Thelma framkvæmdi enn betri æfingu í dag og hækkaði sig um tæplega 0.500 stig milli daga. Framkvæmdi hún nýja afstökkið sitt, tvöfalt heljarstökk með beinum líkama. 12.266 stig var niðurstaða dagsins sem tryggði henni titilinn.

„Ég bætti mig frá því í gær og ég er mjög sátt með það, ég er líka mjög ánægð með að hafa keppt með nýtt afstökk og ég held að það hafi landað þessum sigri“

Thelma Aðalsteinsdóttir

Valgarð Reinhardsson og Dagur Kári Ólafsson nældu sér einnig í verðlaun í dag, báðir á tvíslánni. Valgarð fékk 13.700 stig, sem er hans allra besti árangur á tvíslá hingað til. Valgarð nældi sér í silfur og stutt á eftir honum var Dagur Kári með 13.450 stig, nældi hann sér í bronsið.

Fimleikasambandið átti átta keppendur í 13 úrslitum í dag. Mistök í nokkrum úrslitaseríum settu stórt strik í reikninginn en heilt yfir var árangur dagsins frábær.

Hildur Maja Guðmundsdóttir var aðeins 0.034 stigum frá bronsi á gólfi, en geislaði af henni glæsileikinn. Margrét Lea Kristinsdóttir hafnaði í 7. sæti á slánni, en fall setti stórt strik í reikninginn á annars stórglæsilegri sláaræfingu. Lilja Katrín Gunnarsdóttir var að taka þátt í sínu fyrsta A landsliðsverkefni og var hún aðeins 0.033 frá bronsinu á stökki, framkvæmdi hún tvö mjög erfið stökk.

Ágúst Ingi Davíðsson endaði í 5. sæti á gólfinu með 12.750 stig og 8. sæti á hringjunum eftir súrt fall með 11.900 stig. Martin Bjarni Guðmundsson framkvæmdi tvö flott stökk og hafnaði hann í 4. sæti með 13.700 stig. Martin endaði í 6. sæti á gólfinu með 11.550 stig og 6. sæti á svifránni með 11.700 stig. Valgarð Reinharsson sótti sér silfur á tvíslánni, eins og fyrr sagði, en endaði hann í 6. sæti á stökkinu með 13.425 stig og 4. sæti á svifránni með 12.750 stig.

Fimleikasambandi Íslands óskar keppendum, þjálfurum og félögum innilega til hamingju með frábæran árangur í dag!

Áfram Íslands!