Select Page

Íslandsmót í hópfimleikum fór fram í umsjón fimleikadeildar ÍA á Akranesi um helgina. Mætt til leiks var allt flottasta hópfimleikafólk landsins og spennan rafmögnuð á Skaganum.

Í kvennaflokki varði kvennalið Stjörnunnar titilinn og var þetta í áttunda skipti í röð sem Stjarnan hampar titlinum. Stjarnan og Gerpla hafa lengi verið í harði keppni um fyrsta sætið en það var einmitt Gerpla sem vann Bikarmót í mars síðastliðnum. Stjörnukonur mættu einbeittar til leiks og höfðu betur bæði á gólfi og dýnu en Gerplukonur urðu efstar á trampólíninu.

Úrstlit í kvennaflokki:

Stjarnan 53.550 stig

Gerpla 52.150 stig

Selfoss 48.450 stig

Í blönduðum flokki var lið Aftureldingar mætt í fyrsta skipti með lið í meistaraflokki og óskum við þeim til hamingju með þann árangur. Afturelding fékk samtals 36.600 stig.

Í karlaflokki var lið Stjörnunnar mætt til leiks og framkvæmdu þeir stökk á heimsmælikvarða. Stjarnan fékk samtals 47.650 stig.

Við óskum félögunum til hamingju með titlana og þökkum ÍA fyrir frábært mótahald.

Hér má sjá úrslit mótsins.

Myndir frá mótinu.