Select Page

Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Hildur Maja Guðmundsdóttir og Thelma Aðalsteinsdóttir eru komnar til Kaíró í Egyptalandi eftir langt ferðalag þar sem þær keppa á Apparatus World Cup næstu daga. Þær tóku létta æfingu í æfingasalnum í gær og podiumæfingu í keppnissalnum í dag, þar sem markmiðið var að kynnast áhöldunum og fínpússa æfingarnar fyrir undankeppnina.

Með þeim í för eru Þorgeir Ívarsson landsliðsþjálfari, Agnes Suto fararstjóri/media, auk Sæunnar Viggósdóttur alþjóðlegum dómara.

Stelpurnar stóðu sig vel í dag, fóru í gegnum keppnisæfingarnar sínar og löguðu það sem þurfti að fínpússa. Stemningin í hópnum er góð og verður spennandi að fylgjast með þessum frábæru fimleikakonum á stóra sviðinu næstu daga.

Á morgun hefja þær Thelma og Lilja Katrín keppni á tvíslá. Á laugardag keppa síðan Lilja Katrín og Thelma á gólfi og að lokum þær Hildur Maja og Thelma á slá.

Úrslitin verða sýnd í beinni útsendingu og við munum gera okkar besta til að sýna einnig frá undankeppninni á samfélagsmiðlum sambandsins: Icelandic_Gymnastics á Instagram og Fimleikasamband Íslands á Facebook.

Dagskrá

Föstudagurinn 3. apríl

Kl. 14:00 á íslenskum tíma

  • Thelma og Lilja Katrín keppa á tvíslá

Laugardagurinn 4. apríl

Kl. 14:00 á íslenskum tíma

  • Thelma og Lilja Katrín keppa á gólfi

Kl 14:40 á íslenskum tíma

  • Hildur Maja og Thelma keppa á gólfi

Sunnudagurinn 5. apríl og mánudagurinn 6. apríl – úrslit

World Gymnastics hefur gert samning við Elevien, þar sem myndbönd og einkunnir frá keppni verður deilt eftir mótið.

Bein úrslit!

Hér má fylgjast með úrslitunum!

Hér er linkur á myndir frá mótinu.

Fimleikasamband Íslands óskar þeim Lilju Katrínu, Hildi Maju og Thelmu góðs gengis í Kaíró, Egyptalandi.

Áfram Ísland!