Sólveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Fimleikasambandsins skrifaði greinina Stærsta lýðheilsumálið – allt íþróttastarf undir, á fréttamiðilinn Vísi.
Sólveig skrifaði:
Að taka utan um börnin okkar og ungmenni á þessum tímum, að veita þeim skjól, áheyrn og stuðning til að koma þeim sem best í gegnum veirutímann er eitt af stóru verkefnum samfélagsins.
Á þeirri vegferð eru það grunnkerfin í kringum börnin okkar sem gegna veigamiklu hlutverki, skólinn og skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf. Það má í raun líkja þessum kerfum við vegasalt, þar sem gæta verður jafnvægis beggja vegna. Vegasaltið virkar ekki ef aðeins er setið öðru megin. Íslendingum hefur á undanförnum árum tekist að byggja upp skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf svo að eftir er tekið, en 90% af grunnskólanemum fara í gegnum skipulagt íþróttastarf. Rannsóknir og greining hafa um árabil sinnt rannsóknum á grunnskólabörnum og kynnt góðan árangur okkar og frábært forvarnarstarf sem íslenska módelið. Íslenska módelið snýr að því að styrkja þátttöku barna og unglinga í íþróttastarfi, starfi sem hefur svo mikla þýðingu fyrir æskuár barnanna okkar, bæði út frá líkamlegum heilbrigðissjónarmiðum en einnig andlegri heilsu, félagslegum þroska og ekki síst árangri í skóla.
Brottfall – gerum allt sem við getum til að sporna gegn því
Það er mikið áhyggjuefni fyrir okkur öll að nú þegar er byrjað að bera á brottfalli. Vísbendingar eru um að boltinn er farinn að rúlla og það er í okkar höndum að gera allt sem við getum til stoppa hann. Forvarnargildi íþróttastarfs er óumdeilt, um leið og það er stór þáttur í andlegri vellíðan barna. Ef aðstæður í samfélaginu okkar verða til þess að þau heltist úr lestinni í stórum stíl, er voðinn vís og til þess fallinn að valda stórum skaða. Skaða sem mun láta finna fyrir sér seinna á lífsleið þessarar kynslóðar með tilheyrandi sársauka og kostnaði fyrir samfélagið.
Skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf er nefnilega svo miklu meira en hreyfing, það heldur utan um börnin, kerfið er til staðar fyrir þau og oft á tíðum tekur það utan um börn sem finna sig ekki annars staðar.
Nágrannar í Norðri – börnin í forgangi
Þegar litið er til landanna sem við berum okkur helst saman við, Norðurlandanna, hafa þau öll verið að herða á sínum sóttvörnum og sum hver með strangari reglur en við búum við hér á landi. Það er hins vegar yfirlýst markmið þessara nágrannaríkja okkar að halda barna og unglingastarfi í skóla og íþróttum gangandi í lengstu lög.
Það er ekkert launungarmál að það voru vonbrigði að þessu skyldi snúið á hvolf í fyrri tilslökun, þegar einungis fullorðna fólkið fékk að stunda sína íþrótt á ný. Við í íþróttahreyfingunni viljum eðlilega sjá allt íþróttastarf komast í gang sem fyrst, en erum líka meðvituð um að við þessi fullorðnu höfum meiri reynslu og þroska til að takast á við það langhlaup sem baráttan við veiruna er. Börn og unglingar eiga að vera í algjörum forgangi á þessum þrúgandi tímum.
Áfram við
Nú ríður á að við stöndum saman öll sem eitt, róum í sömu átt að sameiginlegu markmiði, komum böndum á veiruna og vinnum samhliða að því að koma börnum og unglingum af stað í skipulagt íþróttastarf. Þegar kemur að næstu endurskoðun á gildandi sóttvarnareglum þann 17. nóvember verða komnar tæpar 6 vikur frá því að skellt var í lás á íþróttastarf barna á Íslandi, í annað sinn á árinu. Sameinumst um að halda utan um börnin okkar og koma þeim aftur í íþróttirnar, það umhverfi sem þeim líður best í. Það á að vera kappsmál okkar allra, foreldra, íþróttafélaganna, skólanna og heilbrigðiskerfisins að ná börnunum aftur í gang í skipulögðu íþróttastarfi.