Select Page

Í dag kepptu íslensku landsliðin í fjölþrautar- og liðakeppni á Smáþjóðaleikunum. Konurnar mættu af krafti til keppni og sóttu silfur eftir harða baráttu um gullið. Geislaði af þeim glæsileikinn og sýndu þær sannfærandi æfingar. Íslenska liðið skilaði 136.400 stigum og sigraði lið Möltu með 138.250 stig. Besta fjölþrautarárangur Íslands átti Kristjana Ósk Ólafsdóttir með 43.200 stig í 9. sæti.

Karlalandsliðið byrjaði keppnina af krafti í morgun og voru þeir lengi vel í úrslitabaráttu, svifráin reyndist okkar mönnum snúin í dag og hafði það mikil áhrif á lokaniðurstöðuna sem varð 4. sætið með 200.700 stig. Karlarnir okkar eiga mikið inni og fá þeir tækifæri á morgun í úrslitunum til þess að sýna það. Besta fjölþrautarárangur Íslands átti Lúkas Ari Ragnarsson með 65.950 stig í 8. sæti.

Heilt yfir var dagurinn góður og á Ísland keppendur í úrslitum á öllum áhöldum á morgun.

Úrslitakeppendur

  • Þóranna Sveinsdóttir keppir til úrslita á tvíslá
  • Margrét Lea Kristinsdóttir keppir til úrslita á tvíslá og slá
  • Rakel Sara Pétursdóttir keppir til úrslita á stökki, slá og gólfi
  • Nanna Guðmundsdóttir keppir til úrslita á gólfi

Úrslit í karlakeppni:

  • Jónas Ingi Þórisson kepptir til úrslita á gólfi, bogahesti og stökki
  • Kári Pálmason keppir til úrslita á gólfi, bogahesti, tvíslá og stökki
  • Jón Sigurður Gunnarsson keppir til úrslita á hringjum og tvíslá
  • Lúkas Ari Ragnarsson keppir til úrslita á hringjum og svifrá
  • Sigurður Ari Stefánsson keppir til úrslita á svifrá

Hér má finna niðurstöður dagsins.

Hér verða birtar myndir.

Fimleikasamband Íslands óskar keppendum, þjálfurum og félögum innilega til hamingju með góðan árangur í dag!