Select Page

Þá er komið að World Challenge Cup í Tashkent, Úsbekistan, þær Lilja Katrín Gunnarsdóttir og Rakel Sara Pétursdóttir eru mættar út og tilbúnar til keppni. Með þeim í för eru þau Stephen Hood, þjálfari, Agnes Suto, farastjóri og Daniella Belanyi alþjóðlegur dómari. Ferðalagið hófst í fyrradag og lauk í gærmorgun, í gær tóku þær létta æfingu og í dag tók við podiumæfing.

Ferðalagið byrjaði á smávæginlegum hnökrum þegar töskurnar þeirra skiluðu sér ekki á leiðarenda, og hafa þær ekki enn skilað sér út – þær Rakel Sara og Lilja Katrín voru vel undirbúnar með æfinga og keppnisfatnað í handfarangri og láta það ekki á sig fá að vanta töskurnar sínar, þó við vonum samt að þær skili sér fyrir keppni á morgun. Podiumæfingin gekk mjög vel og stelpurnar tilbúnar að stíga á stóra sviðið á morgun.

Á morgun hefst fyrsti undanúrslitadagurinn, þar sem keppt er á stökki og tvíslá í kvennakeppninni. Rakel Sara hefur keppni kl. 09:30 á Íslenskum tíma og Lilja Katrín á tvíslá kl. 11:30. Á föstudag tekur svo við seinni undanúrslitadagur þar sem stelpurnar okkar keppa á slá og gólfi.

Dagskrá

Fimmtudagurinn 21. maí – undanúrslitadagur 1

  • Rakel Sara keppir á stökki kl. 09:30
  • Lilja Katrín keppir á tvíslá kl. 11:30

Föstudagurinn 22. maí – undanúrslitadagur 2

  • Rakel Sara og Lilja Katrín keppa á slá milli kl. 09:30 – 11:10
  • Rakel Sara og Lilja Katrín keppa á gólfi milli kl. 11:10 – 12:50

Laugardagurinn 23. maí – úrslitadagur 1

  • Úrslit á stökki og tvíslá kvenna
  • Úrslit á gólfi, bogahesti og hringjum karla
  • Úrslit hefjast kl. 10:00

Sunnudagurinn 24. maí – úrslitadagur 2

  • Úrslit á slá og gólfi kvenna
  • Úrslit á stökki, tvíslá og svifrá karla
  • Úrslit hefjast kl. 10:00

*Allt íslenskur tími

Við munum deila link á bein úrslit ef hann verður í boði á samfélagsmiðlum sambandsins.

Hér er linkur á myndir frá mótinu.

Fimleikasamband Íslands óskar þeim Lilju Katrínu og Rakeli Söru góðs gengis í Tashkent, Úsbekistan.

Áfram Ísland!