Fimleikasamband Íslands hefur ráðið Ingvar Daða Þórisson í tímabundið starf afreksstjóra í hópfimleikum, en hann mun leysa Ingunni af á meðan að hún er í fæðingarorlofi. Ingvar Daði hóf formlega störf fyrir sambandið í dag, 31. mars.
Ingvar Daði er fimleikahreyfingunni kunnugur en hann hefur þjálfað fimleika til margra ára hjá Stjörnunni. Einnig stundaði hann fimleika í áraraðir bæði hjá Gerplu og Stjörnunni.
Ingvar Daði útskrifaðist með gráðu í Hagfræði árið 2025, frá Háskóla Íslands.
Fimleikasamband Íslands býður Ingvar Daða Þórisson hjartanlega velkominn til starfa.