Select Page

Fimleikasambandið hefur ráðið Þorgeir Ívarsson í tímabundið starf afreksstjóra áhaldafimleika kvenna, en hann mun leysa Þóreyju af sem er í fæðingarorlofi. Hann starfar einnig sem landsliðsþjálfari unglinga í áhaldafimleikum kvenna. Þorgeir hefur mikla reynslu sem þjálfari í áhaldafimleikum og hópfimleikum en hann hefur þjálfað fimleika í fjölda ára.

Þorgeir hefur ekki bara reynslu á þjálfun hérlendis en árið 2020 starfaði hann sem aðstoðaryfirþjálfari í áhaldafimleikum kvenna í bresku fimleikafélagi. Þorgeir hefur farið á þjálfaranámskeið bæði í áhaldafimleikum og hópfimleikum hjá Evrópska Fimleikasambandinu (European Gymnastics) og einnig sótt fjölda þjálfaranámskeiða í Bretlandi.

Þorgeir er metnaðarfullur þjálfari sem hefur reynslu af landsliðsþjálfun, hann hefur tekið þátt í þremur Evrópumótum í hópfimleikum, þar sem hann var í landsliðsjálfarateymi íslenska kvennalandsliðsins sem landaði Evrópumeistaratitilinum árið 2021 og nældi sér svo í silfur árið 2022.

Við bjóðum Þorgeir velkominn til starfa og hlökkum mikið til að vinna með honum að uppbyggingu íslenskra fimleika.