Fimleikasamband Íslands þakkar þeim félögum sem sýndu framkvæmd Norðurlandamóts unglinga í áhaldafimleikum 2027 áhuga.
Innan auglýsts umsóknarfrests barst ein formleg umsókn sem uppfyllti þær kröfur sem settar voru fram í auglýsingu um verkefnið. Sú umsókn kom frá Íþróttafélaginu Gerplu. Í samræmi við auglýst umsóknarferli hefur því verið ákveðið að fela Íþróttafélaginu Gerplu framkvæmd Norðurlandamóts unglinga í áhaldafimleikum sem fram fer á Íslandi dagana 28.–30. maí 2027.
Við óskum Gerplu innilega til hamingju með verkefnið og hlökkum til samstarfsins við undirbúning og framkvæmd mótsins.
Jafnframt viljum við þakka öllum þeim félögum sem sýndu verkefninu áhuga.