Select Page

Norðurlandamót í áhaldafimleikum er handan við hornið, dagana 23.-25. júlí fer fram Norðurlandamót í fullorðins- og unglingaflokki í Álandseyjum. Ísland sendir fjögur fullmönnuð landslið til keppni, stelpurnar mættu til Álandseyja í gær og strákarnir eru á leiðinni í þessum skrifuðu orðum.

Eftir flugferð og ferjuferð mættu stelpurnar með bros á vör til Álandseyja í gærkvöldi en í dag fá þær að prufukeyra keppnissalinn á æfingu og hefja svo keppni á morgun, strákarnir fylgja sama plani nema degi seinna. Úrslit í öllum flokkum fara svo fram á laugardag.

Dagskrá

Fimmtudagurinn 23. júlí

  • Íslenska unglingalandsliðið (kvk) kl. 13:05-14:50
  • Íslenska kvennalandsliðið (kvk) kl. 19:05-20:35

Föstudagurinn 24. júlí

  • Íslenska unglingalandsliðið (kk) kl. 11:00-14:30
  • Íslenska karlalandsliðið (kk) kl. 16:00-19:30

Laugardagurinn 25. júlí

  • Úrslit á einstökum áhöldum kl. 11:30-14:30

Hér má finna upplýsingar um mótið.

Hér verða birtar myndir.

Hér má finna úrslitalink.

Landslið Íslands skipa:

Karlalið Íslands

  • Atli Snær Valgeirsson – Gerpla
  • Ágúst Ingi Davíðsson – Gerpla
  • Dagur Kári Ólafsson
  • Martin Bjarni Guðmundsson – Gerpla
  • Valgarð Reinhardsson – Gerpla

Kvennalið Íslands

  • Auður Anna Þorbjarnardóttir – Stjarnan
  • Lilja Katrín Gunnarsdóttir – Gerpla
  • Kristjana Ósk Ólafsdóttir – Gerpla
  • Rakel Sara Pétursdóttir – Gerpla
  • Thelma Aðalsteinsdóttir – Gerpla

Unglingalið Íslands (kk)

  • Arnór Snær Hauksson – Gerpla
  • Aron Freyr Davíðsson – Björk
  • Kári Hjaltason – Gerpla
  • Kári Pálmason – Gerpla
  • Þorsteinn Orri Ólafsson – Ármann

Unglingalið Íslands (kvk)

  • Arney Ívarsdóttir – Stjarnan
  • Elfa María Reynisdóttir – Gerpla
  • Eydís Eva Hermannsdóttir – Stjarnan
  • Magdalena Andradóttir – Ármann
  • Ronja Pétursdóttir – Ármann

Með þeim í för eru Agnes Suto, Þorgeir Ívarsson, Margrét Lea Kristinsdóttir, Róbert Kristmannsson, Hróbjartur Pálmar Hilmarsson, Ólafur Garðar Gunnarsson þjálfarar og landsliðsþjálfarar. Hlín Bjarnadóttir, Daniella Perla Belanyi, Davíð Ingason, Guðmundur Þór Brynjólfsson og Valdimar Matthíasson alþjóðlegir dómarar og Þórey Kristinsdóttir farastjóri.

Fimleikasamband Íslands óskar keppendum góðs gengis á Norðurlandamóti í áhaldafimleikum. Áfram Ísland!