Landsliðsþjálfari karla, Róbert Kristmannsson hefur tilnefnt sex einstaklinga til þátttöku í landsliði Íslands á Norður Evrópumóti. Mótið fer fram í Jyvaskyla, Finnlandi dagana 19.-20. nóvember.
Fimleikasamband Íslands mun ekki senda kvennalið til þátttöku að þessu sinni.
Karlalandslið Íslands skipa:
- Atli Snær Valgeirsson – Gerpla
- Ágúst Ingi Davíðsson – Gerpla
- Dagur Kári Ólafsson – Gerpla
- Jónas Ingi Þórisson – Gerpla
- Martin Bjarni Guðmundsson – Gerpla
- Valgarð Reinharsson – Gerpla
- Varamaður: Valdimar Matthíasson – Gerpla
Þjálfarateymi:
- Róbert Kristmannsson
- Viktor Kristmannsson
Dómarar:
- Guðmundur Brynjólfsson
- Þorsteinn Hálfdánarson
Landsliðsþjálfarar áskila sér rétt til breytinga á hópum og landsliðum.
Fimleikasamband Íslands óskar keppendum innilega til hamingju með árangurinn og góðs gengis í undirbúningi.