Þá er fyrrihluta Norðulandamóts í áhaldafimleikum lokið, íslensku kvenna- og karlalandsliðin mættu einbeitt til leiks á heimavelli, þar sem í dag var keppt í liðakeppni og fjölþraut.
Eftir fyrrihluta mótsins sitja landsliðin í öðru og þriðja sæti. Jón Sigurður Gunnarsson afmælisbarn dagsins leiðir keppni á hringjum en hann er þekktur fyrir frábæra framistöðu sína á hringjunum. Valgarð Reinhardsson, sexfaldur Íslandsmeistari leiðir keppni á gólfi en gólfæfingarnar hans í dag voru stórglæsilegar.
Thelma Aðalsteinsdóttir, nýkrýndur Íslandsmeistari situr í þriðja sæti í einstaklingskeppni og að auki er hún í öðru sæti á slá sem stendur. Hildur Maja situr í öðrusæti á gólfi og rétt á eftir henni er Agnes Suto í því þriðja.
Spennandi verður að fylgjast með seinni hluta mótsins í kvöld þar sem að Norðurlandameistarar í liðakeppni og fjölþraut verða krýndir. Keppnin heldur svo áfram í fyrramálið þar sem að sex sterkustu einstaklingarnir keppast um Norðurlandameistaratitilinn á einstökum áhöldum, Ísland á keppendur í úrslitum.