Select Page

Íslandsmótið í áhaldafimleikum fer fram 18. og 19. apríl næstkomandi í fimleikasal Ármanns í Laugardal og markar einn af hápunktum vetrarins í íslenskum áhaldafimleikum.

Ríkjandi Íslandsmeistarar skráðir til keppni

Fremsta fimleikafólk landsins mætir til keppni, þar á meðal ríkjandi Íslandsmeistarar í fjölþraut, þau Atli Snær Valgeirsson og Thelma Aðalsteinsdóttir. Einnig eru skráð til keppni ríkjandi Íslandsmeistarar á einstökum áhöldum, þau Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Dagur Kári Ólafsson, Lúkas Ari Ragnarsson og Jón Sigurður Gunnarsson. Það er því alveg ljóst að spennandi keppni er fram undan.

Ríkjandi Norðurlandameistari í fjölþraut, Hildur Maja Guðmundsdóttir, er einnig skráð til keppni, sem og Ágúst Ingi Davíðsson sem hafnaði í 4. sæti á heimsbikarmóti í Cottbus í Þýskalandi í febrúar. Fyrrverandi Íslandsmeistararnir Nanna Guðmundsdóttir og Valgarð Reinhardsson eru sömuleiðis á meðal keppenda, ásamt öðrum frábærum keppendum og má búast við harðri baráttu um titlana.

Ríkjandi Íslands- og Norðurlandameistari í unglingaflokki, Kári Pálmason, mætir einnig til keppni. Ljóst er að nýr Íslandsmeistari verður krýndur í unglingaflokki kvenna, þar sem Rakel Sara Pétursdóttir, sem sigraði örugglega í fyrra, hefur nú náð aldri í fullorðinsflokki og keppir þar um titilinn í ár.

Íslandsmeistarar í fjölþraut krýndir á laugardag

Laugardaginn 18. apríl fer fram keppni í fjölþraut og í lok dags verða Íslandsmeistarar krýndir bæði í fullorðins- og unglingaflokki. Innmarsch hefst kl. 12:40 hjá fullorðnum og kl. 17:20 hjá unglingum.

Íslandsmeistarar á einstökum áhöldum krýndir á sunnudag

Sunnudaginn 19. apríl fer svo fram keppni á einstökum áhöldum. Fimm efstu keppendurnir frá fyrri degi á hverju áhaldi vinna sér inn rétt til að keppa til úrslita. Innmars hefst kl. 12:50 hjá körlum, bæði í unglinga- og fullorðinsflokki, og kl. 13:10 hjá konum í báðum flokkum.

Þéttpökkuð dagskrá alla helgina

Að auki verður keppt í 1.-3. þrepi sömu helgi, einnig í Ármanni. Skipulagið í heild sinni má finna á heimasíðu sambandsins.

👉 Skipulag keppninnar má finna hér.

Miðasala fer fram í hurð.

Keppni í beinni á RÚV

RÚV mun sýna beint frá keppni í fullorðinsflokki báða dagana:

  • Laugardaginn 18. apríl kl. 13:00 – fjölþrautarúrslit
  • Sunnudaginn 19. apríl kl. 13:00 – úrslit á einstökum áhöldum

Fimleikasamband Íslands óskar keppendum góðs gengis og áhorfendum góðrar skemmtunar!

📸 Myndir frá mótinu verða birtar hér.

Hér er svo hlekkur á bein útslit.