Agnes Suto, landsliðsþjálfari unglinga hefur tilnefnt tvær stúlkur til keppni á Top Gym í Charleroi, Belgíu dagana 28.-29. nóvember.
Unglingalandslið Íslands skipa;
- Arney Ívarsdóttir, Stjarnan
- Magdalena Andradóttir, Ármann
Agnes Suto, landsliðsþjálfari ferðast með landsliðinu og Nanna Guðmundsdóttir, alþjóðlegur dómari dæmir.
Fimleikasambandi Íslands óskar keppendum góðs gengis í loka undirbúningnum.
