Róbert Kristmannsson, landsliðsþjálfari hefur tilnefnt þrjá einstaklinga til þátttöku á Heimsbikarmóti í Osijek, Króatíu dagana 9.-12. apríl.
Karlalandslið Íslands skipa;
- Ágúst Ingi Davíðsson, Gerpla
- Dagur Kári Ólafsson, Gerpla
- Valgarð Reinhardsson, Gerpla
Viktor Kristmannsson er þjálfari í verkefninu og Daði Snær Pálsson dómari.
Fimleikasambandi Íslands óskar þeim Ágústi Inga, Degi Kára og Valgarði góðs gengis í undirbúningi.
