Þorgeir Ívarsson, landsliðsþjálfari kvenna hefur tilnefnt eftirfarandi einstaklinga til þátttöku á Apparatus World Cup, sem haldið verður dagana 3. – 6. apríl í Cairo, Egyptalandi.
Kvennalandslið Íslands skipa;
- Hildur Maja Guðmundsdóttir – Gerpla
- Lilja Katrín Gunnarsdóttir – Gerpla
- Thelma Aðalsteinsdóttir – Gerpla
Þorgeir Ívarsson þjálfari fer með í verkefnið, Agnes Suto sinnir hlutverki farastjóra/media og Sæunn Viggósdóttir, alþjóðlegur dómari dæmir.
Fimleikasambandi Íslands óskar þeim Hildi Maju, Lilju Katrínu og Thelmu góðs gengis í undirbúningi.
ÁFRAM ÍSLAND!
