Select Page

Nú hefur Fimleikasambandið mannað landsliðsþjálfarastöður fyrir Evrópumótið 2022 í hópfimleikum. Yfirmaður verkefnisins er framkvæmdastjóri FSÍ, Sólveig Jónsdóttir, en daglegur rekstur og umsjón þess er á höndum afreksstjórans, Eddu Daggar Ingibergsdóttur. Yfirþjálfarar verkefnisins, með faglega stjórn og uppbyggingu, eru þau Björn Björnsson og Hrefna Þorbjörg Hákonardóttir, en þau eru meðal reyndustu þjálfara Íslands með feril sem skartar tveimur Evrópumeistaratitlum.

Evrópumótið verður haldið 14. – 17. september 2022 í Lúxemborg, Lúxemborg. Fimleikasambandið stefnir á að senda þrjú fullorðinslið á mótið, kvennalið, karlalið og blandað lið og þrjú unglingalið, stúlknalið, drengjalið og blandað lið unglinga. Nánari upplýsingar um þjálfarateymi drengjaliðs kemur síðar.

Þjálfara hvers liðs má sjá hér fyrir neðan.


Landsliðsþjálfarar Íslands fyrir Evrópumótið 2022

Yfirþjálfarar landsliða

Landsliðsþjálfarar kvenna

Landsliðsþjálfarar blandaðs liðs

Landsliðsþjálfarar karla

Landsliðsþjálfarar stúlkna

Landsliðsþjálfarar blandaðs liðs unglinga

Við óskum öllum þjálfurum til hamingju og óskum þeim góðs gengis í komandi vinnu fyrir landslið Íslands. 

Áfram Ísland!
#fyririsland
#islenskirfimleikar
#fimleikarfyriralla