Landslið Íslands eru mætt til Koper, Slóveníu, þar sem keppt er á heimsbikarmóti. Karlalandslið Íslands skipa þeir Atli Snær Valgeirsson, Ágúst Ingi Davíðsson, Dagur Kári Ólafsson og Jónas Ingi Þórisson. Kvennalandslið Íslands skipa þær Auður Anna Þorbjarnardóttir, Lilja Katrín Gunnarsdóttir og Kristjana Ósk Ólafsdóttir. Með þeim í för eru þau Róbert Kristmannsson, landsliðsþjálfari, Stephen Hood, þjálfari, Helga Svana Ólafsdóttir, farastjóri, Valdimar Matthíasson, alþjóðlegur dómari og Sif Pálsdóttir, alþjóðlegur dómari.
Í dag kláruðu liðin podium æfingu í keppnissalnum og morgun, fimmtudag, tekur svo við fyrsti undanúrslitadagur.

Podiumæfingin gekk mjög vel og allir tilbúnar að stíga á stóra sviðið á morgun þar sem keppt er á stökki og tvíslá í kvennakeppninni og gólfi, bogahesti og hringjum karla megin.
Dagskrá
Fimmtudagurinn 28. maí – undanúrslitadagur 1
- Auður Anna keppir á stökki
- Lilja Katrín keppir á tvíslá
- Jónas Ingi og Ágúst Ingi keppa á gólfi
- Dagur Kári og Atli Snær keppa á bogahesti
- Ágúst Ingi og Atli Snær keppa á hringjum
Keppni á stökki, gólfi og bogahesti byrjar kl.12:00. Keppni á tvíslá og hringjum hefst kl.15:15.
Föstudagurinn 29. maí – undanúrslitadagur 2
- Kristjana Ósk og Lilja Katrín keppa á slá
- Kristjana Ósk og Lilja Katrín keppa á gólfi
- Ágúst Ingi og Dagur Kári keppa á tvíslá
- Ágúst Ingi og Atli Snær keppa á svifrá
Keppni á slá og tvíslá hefst kl.12:00. Keppni á gólfi og svifrá hefst kl. 15:15.
Laugardagurinn 30. maí – úrslitadagur 1
- Úrslit á stökki og tvíslá kvenna
- Úrslit á gólfi, bogahesti og hringjum karla
- Úrslit hefjast kl. 09:20
Sunnudagurinn 31. maí – úrslitadagur 2
- Úrslit á slá og gólfi kvenna
- Úrslit á stökki, tvíslá og svifrá karla
- Úrslit hefjast kl. 09:35
*Allt íslenskur tími
Við munum deila link á bein úrslit ef hann verður í boði á samfélagsmiðlum sambandsins.
Hér er linkur á myndir frá mótinu.
Fimleikasamband Íslands óskar liðunum góðs gengis í Koper, Slóveníu.
Áfram Ísland!



